Tuttugu milljarðar í rekstur slitastjórna og skilanefnda 30. janúar 2010 00:01 Rekstrarkostnaður slitastjórnar og skilanefndar gamla Landsbankans nam 11,5 milljörðum króna á síðasta ári.
Heildarkostnaður við rekstur slitastjórna og skilanefndir Glitnis, Kaupþings og Landsbankans nam 19,8 milljörðum króna á síðasta ári, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Kostnaðurinn er mestur hjá slitastjórn og skilanefnd Landsbankans, en heildarkostnaður þeirra nam 15,3 milljörðum króna á síðasta ári. Lægstur var kostnaðurinn við uppgjör á þrotabúi Kaupþings. Uppgjör Glitnis nær aðeins til loka nóvember í fyrra. Kostnaðurinn var undir áætlun að öllu leyti ef frá er talinn sérfræðikostnaðurinn, sem reyndist um 38 prósentum yfir áætlun. Sérfræðikostnaður vegur jafnframt þyngst í uppgjöri á rekstrarkostnaði slitastjórna og skilanefnda hinna bankanna, eða rétt tæplega helmingur af öllum útgjöldum þeirra. Einungis er gerður greinarmunur á innlendum og erlendum sérfræðikostnaði í uppgjöri Kaupþings, sem kynnt var kröfuhöfum bankans á fundi á Nordica Hotel í gær. Hjá Kaupþingi nam innlendi sérfræðikostnaðurinn í heildina rúmum 3,2 milljörðum króna, þar af hljóp sá erlendi á rúmum 2,3 milljörðum króna. Sérfræðikostnaður Landsbankans nam á móti tæpum 4,4 milljörðum króna. Annar kostnaður skilanefnda og slitastjórna föllnu bankanna fellur undir endurskoðun á reikningum, kostnað við rekstur tölvukerfa auk þóknana til nýju bankanna fyrir afnot af rými, tækjum og starfsfólki. Á kröfuhafafundi Kaupþings í gær kom fram að rekstrarkostnaður slitastjórnar og skilanefndar bankans var 0,24 prósent af heildareignum þrotabúsins, sem þar voru í stýringu í fyrra og rétt rúmlega hálft prósent af nettóeignum búsins um mitt síðasta ár. Rekstrarkostnaður slitastjórna og skilanefnda bankanna dregst frá kröfum í bú gömlu bankanna. Á meðal umsvifamikilla kröfuhafa þeirra eru Seðlabanki Íslands, lífeyrissjóðirnir og nýju bankarnir ásamt fleiri aðilum, innlendum og erlendum. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira