Kröfur Landsbankans á Straum ekki forgangskröfur 3. júní 2010 12:35
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms um að kröfur Landsbankans upp á 48,5 milljarða kr. á hendur Straumi séu ekki forgangskröfur.Landsbankinn krafðist þess að kröfur hans á hendur Straumi yrðu við slitameðferð Straums viðurkenndar sem forgangskröfur samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti og lögum um fjármálafyrirtæki.Í reifun Hæstaréttar segir að aðila greindi ekki á um að Landsbankin ætti kröfur á hendur Straumi og enginn tölulegur ágreiningur var í málinu. Þeim bar hins vegar ekki saman um hvers eðlis þær greiðslur Landsbankans til Straums hefðu verið, sem fram komu í kröfulýsingu þess fyrrnefnda.Landsbankinn hélt því fram að um hefði verið að ræða svonefnd peningamarkaðsinnlán, sem ætluð hefðu verið til ávöxtunar fjár eins og hver önnur innlán. Straumur taldi á hinn bóginn að um lán til sín hefði verið að ræða sem í öllum tilvikum yrðu rakin til lánasamninga, sem áður hefðu verið gerðir milli aðilanna, og greiðslur Landsbankans yrðu skýrðar með.Í samræmi við það hefði kröfum Landsbankans verið skipað í flokk almennra krafna. Ágreiningslaust var að kröfur Landsbankans nytu ekki tryggingaverndar samkvæmt lögum. Þegar af þeirri ástæðu gætu kröfurnar ekki notið þeirrar rétthæðar við slit Straums , sem Landsbankinn krafðist, og þyrfti þá ekki að leysa sérstaklega úr því hvort þær væru til komnar sem innlán eða lánveiting.Hæstiréttur staðfestir því úrskurð Héraðsdóms og kröfum Landsbankans er hafnað. Landsbankanum var jafnframt gert að greiða málsvarnarlaun Straums upp á 800 þúsund kr.
Mest lesið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Viðskipti erlent „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Viðskipti innlent Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Viðskipti erlent Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Viðskipti innlent Engar hópuppsagnir í apríl Viðskipti innlent Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Atvinnulíf Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Fleiri fréttir Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Sjá meira