Arna Stefanía sló metið hennar Helgu Margrétar um helgina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. september 2010 10:00
ÍR-ingurinn Arna Stefanía Guðmundsdóttir náði frábærum árangri á þrautarmóti í Svíþjóð um helgina þegar hún varð í efsta sæti í sínum aldursflokki og sló meyjarmet í sjöþraut með því að ná í 5029 stig. Það er engin önnur en Íslandsmethafinn Helga Margrét Þorsteinsdóttir sem átti gamla metið sem var frá árinu 2006. Arna Stefanía sem er aðeins nýorðin 15 ára keppti við stelpur árinu eldri en náði samt fyrsta sætinu í aldursflokknum sem er frábær árangur hjá henni. Arna Stefanía náði einnig að gera betur en Helga Margrét í 800 metra hlaupinu og náði þar með besta tíma ársins í meistaraflokki þegar hún hljóp á 2:14,67 mínútum. Helga Margrét átti besta tímann, 2:14,84 mínútur. Kristín Birna Ólafsdóttir úr ÍR náði öðru sæti í kvennaflokki með 5363 stig. Þetta er hennar næstbesti árangur í þraut en hún náði 5402 stigum árið 2006. Ingi Rúnar Kristinsson úr Breiðablik náði 6111 stigum sem er nokkuð frá hans besta en hann átti ekki eins góðan seinni dag. Hann endaði samt í 2 sæti í hans aldursflokki. Sveinbjörg Zophoníasdóttir úr USÚ varð þriðja í 19 ára flokknum með 5044 stig. Þetta er hennar næstbesti árangur í þraut. Hún á best 5123 stig síðan fyrr í sumar.
Innlendar Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Valur – Keflavík | Finna Keflavíkurkonur týndu klærnar? Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Bergur með tvö Íslandsmet á HM Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli KA slítur samstarfinu við Þór Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Dómari fótbraut óvart leikmann Carrick á blaðamannafundi: „Við eigum tvo frábæra leiki í þessari viku“ Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Dagskráin í dag: Bónus-deild kvenna og umferðinni lýkur í Newcastle Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sjá meira