Viðskipti innlent

Milljarðalán til tónlistarhúss afskrifuð

Lánsfé til byggingar tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu var tryggt í gær. Bankarnir þrír lána tæpa tuttugu milljarða í mesta lagi. Fréttablaðið/GVA
Lánsfé til byggingar tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu var tryggt í gær. Bankarnir þrír lána tæpa tuttugu milljarða í mesta lagi. Fréttablaðið/GVA

Austurhöfn-TR, sem er í um helmingseigu ríkis og Reykjavíkurborgar, keypti átta milljarða króna kröfu gamla Landsbankans á Portus vegna tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu í Reykjavík í fyrra með nýjum lánum og veði í þremur byggingareitum á sömu lóð og tónlistarhúsið stendur. Ekkert hefur verið gefið upp um kaupverð og er hún sveipuð bankaleynd, að sögn Stefáns Hermannssonar, framkvæmdastjóra Austurhafnar.

Landsbankinn ætlaði að byggja nýjar höfuðstöðvar á tveimur reitanna sunnan Geirsgötu og á þeim þriðja átti að reisa hótel. Fasteignafélagið Nýsir átti fjórða reitinn og tengist hann ekki kröfunum. Ljóst er að ekkert verður úr þeim framkvæmdum. „Við vonumst til að selja reitina þegar markaðurinn réttir úr kútnum,“ segir Stefán og bætir við að kaupverðið, sem rennur til bankans, verði langt frá þeim átta milljörðum sem krafan hljóðaði upp á. Ljóst er því að Portus keypti kröfuna með verulegum afslætti og situr Landsbankinn uppi með tapið.

Portus var í eigu gamla Landsbankans og Nýsis. Félagið tók átta milljarða króna lán hjá gamla Landsbankanum vegna framkvæmdanna og lögðu auk þess báðir aðilar einn milljarð króna hvor í verkið. Líkt og kunnugt er fóru bæði Nýsir og gamli Landsbankinn í þrot haustið 2008 og stefndi það byggingarframkvæmdum í hættu. Austurhöfn-TR tók verkið yfir í mars í fyrra.

Austurhöfn TR skrifaði í gær undir sambankalán upp á allt að 17,5 milljarða króna sem Arion, Íslandsbanki og Landsbanki veita til byggingar hússins. Forsvarsmenn Austurhafnar segja kostnaðaráætlun hljóða upp á 14,5 milljarða króna miðað við verðlag í október 2008 ásamt verðbótum.

Framreiknaður kostnaður fram í júní á næsta ári, þegar taka á húsið í notkun, hljóðar upp á 17,5 milljarða.

Lánin eru með veði í framlagi ríkis og borgar upp á rúmar átta hundruð milljónir króna á ári í 35 ár. Framlagið og hluti af leigu sem Sinfóníuhljómsveit Íslands greiðir fyrir aðstöðu í húsinu mun standa undir afborgunum, að sögn Stefáns. „Þetta eru einu lánin sem hvíla á tónlistarhúsinu í dag,“ segir hann. jonab@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×