Þurfa að sækja fé á lánsfjármarkað 23. september 2010 06:00 Ljósleiðari lagður Deilur vegna ljósleiðaralagningar á vegum Orkuveitu Reykjavíkur náðu hámarki á fyrri hluta þessa áratugar þegar verkefnið var undir hatti Línu.nets. Fréttablaðið/GVA
Stefnubreyting og aðhald hjá Orkuveitu Reykjavíkur eftir meirihlutaskipti í borginni þarf ekki að þýða breytingar hjá Gagnaveitu Reykjavíkur, dótturfélagi Orkuveitunnar. Þess er beðið að ný stjórn verði skipuð yfir Gagnaveituna, en ekki hafa fengist svör hjá forstjóra Orkuveitunnar um hvenær til standi að skipa hana. Ingvar Garðarsson, fráfarandi stjórnarformaður, segist ekki gera ráð fyrir að gamla stjórnin komi saman á ný. Aðalfundur hefur verið boðaður næstkomandi föstudag. Birgir Rafn Þráinsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur, segir að í seinni tíð hafi orðið til þokkaleg samstaða um verkefni Gagnaveitunnar. Hann segir tekjur af starfseminni umtalsverðar og aukast jafnt og þétt með örri fjölgun viðskiptavina. „Segja má að við séum í miðri á í uppbyggingarstarfi, en frá 2005 erum við búin að ljósleiðaravæða tugþúsundir heimila," segir Birgir, en áætlanir Gagnaveitunnar gera ráð fyrir að lokið verði við að ljósleiðaravæða stóran hluta höfuðborgarsvæðisins árið 2014. Orkuveita Reykjavíkur á allt hlutafé Gagnaveitunnar, en eftir ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar árið 2006 um fjárhagslegan aðskilnað, var ákveðið að stofna sérfélag um reksturinn. Birgir segir Gagnaveituna því á annarri bylgjulengd en Orkuveitan, með eigin fjármögnun, tekjustrauma og viðskiptalíkan. „Sparnaður í rekstri Gagnaveitunnar myndi ekki skila sér inn í rekstur Orkuveitunnar, því við tilheyrum ekki þeim rekstrarreikningi," segir hann og kveður ekkert gefa tilefni til að ætla að uppstokkun verði á stefnu Gagnvaveitunnar. „En auðvitað er það hlutverk stjórnar að móta stefnu hverju sinni." Birgir segist ekki vilja fara í þaula í tímasetningar tengdar fjármögnun Gagnaveitunnar. Fyrirtækið hafi þó ekki sóst eftir langtímafjármögnun á þeim kjörum sem í boði voru á almennum lánsfjármarkaði í fyrra. Gagnaveitunni hafi þó verið tekið vel af lánveitendum og haft tiltrú þeirra. Fyrirtækið þurfi hins vegar að endurfjármagna lán sín og bæta við á framkvæmdatímanum sem eftir er. „Reksturinn skilar vissulega góðri afkomu upp í fjárfestingar, en eins og alltaf þegar byggðir eru upp stórir nýir innviðir þá þarf miklu meira en reksturinn skilar af sér strax í upphafi. Við höldum því áfram að sækja til almenna lánsfjármarkaðarins, bæði hvað varðar ný lán og endurfjármögnun og eigum von á að fá þar góðar viðtökur." olikr@frettabladid.is
Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Óskað eftir tillögum að uppbyggingu við Reykjanesvita Viðskipti innlent WOW millilendir á leiðinni til Los Angeles Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira