Úrskurðarnefnd telur hættu á að bankar raski samkeppni 25. janúar 2010 00:01
Séu ekki settar skorður við langvarandi eignarhaldi lánardrottna á borð við banka á fyrirtækjum á samkeppnismarkaði skapast ýmis konar hætta á röskun á samkeppni. Þetta er mat úrskurðarnefndar um samkeppnismál. Þetta kemur fram í úrskurði nefndarinnar vegna samruna Vestia, eignarhaldsfélags Landsbankans, og Teymis. Úrskurðarnefndin hefur fellt úr gildi ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, og leggur fyrir eftirlitið að setja skilyrði fyrir samrunanum. Sú röskun sem getur orðið vegna langvarandi eignarhalds bankanna getur strítt gegn markmiði samkeppnislaga, og þar með hagsmunum neytenda, ef fyrirtæki getur athafnað sig á markaði án eðlilegs aðhalds frá lánardrottnum sínum og eiganda, segir í niðurstöðum úrskurðarnefndarinnar. „Telja verður að fjárhagslegur styrkur eigandans skipti hér máli og „þol" hans til að bíða með að fá fjármagn sitt til baka þar til önnur fyrirtæki á sama markaði hafa eftir atvikum veikst eða helst úr lestinni," segir í úrskurðinum. Ljóst er að hagsmunatengsl banka liggja víða og ýmis vandamál skapast vegna þeirra miklu upplýsinga sem bankarnir búa yfir um samkeppnisaðila, og eftir atvikum viðskiptamenn á markaði, segir þar enn fremur. Þá verði ekki horft fram hjá því að bankarnir séu stórir viðskiptavinir á þjónustumörkuðum og í núverandi ástandi séu mörg félög þeim tengd. Því geti skapast hætta á „óeðlilegum gerningum" og misnotkun á þeirri aðstöðu, Úrskurðarnefndin telur mögulegt að koma í veg fyrir eða draga úr óæskilegum áhrifum langvarandi eignarhalds banka á fyrirtækjum á samkeppnismarkaði með mótvægisaðgerðum áður en af samrunanum verður. Til dæmis megi gera fyrirtækjunum skylt að starfa eins sjálfstætt og unnt sé, og að þeim verði ráðstafað innan eðlilegs tíma. Samruni Teymis og Vestia gekk í gegn eftir nauðasamninga á síðasta ári án athugasemda Samkeppniseftirlitsins. Síminn kærði niðurstöðu eftirlitsins til úrskurðarnefndar um samkeppnismál, sem nú hefur úrskurðað fyrirtækinu í hag.- bj
Mest lesið Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Voni að allir fái starfið aftur Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Sjá meira