Varnarmálastofnun stefnir á að skila afgangi 25. janúar 2010 17:42
Varnarmálastofnun áætlar að skila um 120 milljón krónum í rekstrarafgang af fjárheimildum ársins 2009, en sú niðurstaða hefur fengist með verulegu aðhaldi í rekstri stofnunarinnar, að því er segir í tilkynningu frá stofnuninni. „Fjárheimild ársins 2009 hljóðaði upphaflega upp á 1.227 milljón krónur, en hún var skert um 50 milljónir á árinu, samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar vegna aðhaldsaðgerða. Rekstur ársins 2009 var því um 170 milljón krónum undir upphaflegum fjárheimildum," segir einnig. Þá segir að stofnuninni hafi tekist að hagræða með því að draga verulega saman í rekstri og með því að fresta áætluðum viðhaldsverkefnum og kaupum á tækjum. „Þjónustusamningum við verktaka hefur verið sagt upp og þeim verkefnum sinnt með því að nýta betur starfsmenn stofnunarinnar. Þá hefur ferðakostnaður hér heima og erlendis verið takmarkaður eins og kostur er," segir einnig. „Á árinu 2008 var Varnarmálastofnun rekin með 313 milljón krónur í rekstrarafgang. Er því uppsafnaður afgangur á fyrstu 18 mánuðum stofnunarinnar áætlaður um 430 milljón krónur. Endanlegar fjárheimildir fyrir árið 2008 lágu ekki fyrir fyrr en með fjáraukalögum 2008. Í ljósi efnahagsástandsins, kröfu um hagræðingu og aðhald í ríkisrekstri sem og stöðu íslensku krónunnar hefur einungis nauðsynlegustu verkefnum á sviði viðhalds mannvirkja og kerfa verið sinnt frá stofnun Varnarmálastofnunar. Frá upphafi hefur stofnunin í hvívetna sýnt ábyrgð í meðferð fjármuna." Óljóst er um framtíð Varnarmálastofnunar en að störfum er nú nefnd fimm ráðuneyta sem mun í lok febrúar leggja fram tillögur um framtíð Varnarmálastofnunar. „Á meðan annað hefur ekki verið ákveðið sinnir Varnarmálastofnun þeim verkefnum sem henni hafa verið falin með varnarmálalögum og ákvörðun utanríkisráðuneytis."
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira