Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan október 2010 er 100,9 stig sem er lækkun um 2,0% frá fyrri mánuði. Vísitalan gildir í nóvember 2010.
Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 1,7%.