Óvíst um fjármögnun vatnsfyrirtækis 13. október 2010 05:00 Framkvæmdir við vatnsverksmiðju Iceland Glacier Products stóðu yfir í sumar og reis þá límtrésgrind hússins. Fréttablaðið/pjetur
Óvissa ríkir um eignarhald og fjármögnun vatnsátöppunarverksmiðju Iceland Glacier Products á Rifi á Snæfellsnesi. Verksmiðjuhúsið er fokhelt og var dyragötum og gluggum lokað fyrir rétt rúmum mánuði. Iceland Glacier Products tapaði rúmum 118,7 milljónum króna í fyrra, samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins. Þetta var þriðja starfsár fyrirtækisins, sem hollenski tannlæknirinn Otto Spork stofnaði hér á landi. Þrátt fyrir að framkvæmdir hafi staðið yfir á Rifi í um þrjú ár er verksmiðjan ekki nálægt því að geta hafið framleiðslu á flöskuvatni. Þá hafa tæki til átöppunar ekki verið keypt svo vitað sé. Spork rak vogunarsjóðinn Sextant Strategic Opportunities í Kanada um nokkurra ára skeið. Það rak nokkra undirsjóði, sem skráðir eru á Cayman-eyjum. Sjóðirnir fjármögnuðu byggingu átöppunarverksmiðjunnar á Rifi með lánveitingum. Þeir breyttu skuldum í hlutafé á síðasta ári. Við það eignuðust þeir sextíu prósenta hlut í Iceland Glacier Products. Riambel, fjárfestingarfélag Sporks sem skráð er í Lúxemborg, á 23,7 prósenta hlut. Ekki liggur fyrir hver á tæp þrettán prósent en hluturinn er skráður á félagið Hermitage. Félög tengd Spork eru jafnframt helstu kröfuhafar. Kanadíska verðbréfaeftirlitið hóf að rannsaka fjármögnunarfyrirtæki Sporks fyrir um tveimur árum. Samkvæmt málsgögnum lögðu í kringum 250 einstaklingar og aðrir fjárfestar um áttatíu milljónir dala, jafnvirði tæpra níu milljarða króna, til fyrirtækis Sporks í von um væna ávöxtun. Spork mun hafa tekið sér margar milljónir dala í þóknunarkostnað, stýrt sjóðunum sem um hans eigið sparifé væri að ræða og hunsað tilkynningarskyldu til eftirlitsaðila. Kanadíska verðbréfaeftirlitið kyrrsetti sjóði Sporks á Cayman-eyjum og í Kanada fyrir tæpum tveimur árum. Skiptastjóri í Kanada vinnur nú að slitum þeirra og leitar eftir því að selja eignir úr þeim, þar á meðal átöppunarverksmiðjuna, og greiða út til sjóðsfélaga. Óvíst er hvað þeir fá mikið til baka. Þeir sem Fréttablaðið hefur rætt við og komið hafa að uppbyggingu verksmiðjunnar segja flestar áætlanir hafa gengið eftir og Spork, sem hafi sýnt verkinu mikinn áhuga, ávallt hafa staðið við sitt. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira