Viðskipti innlent

Óvíst um fjármögnun vatnsfyrirtækis

Framkvæmdir við vatnsverksmiðju Iceland Glacier Products stóðu yfir í sumar og reis þá límtrésgrind hússins. Fréttablaðið/pjetur
Framkvæmdir við vatnsverksmiðju Iceland Glacier Products stóðu yfir í sumar og reis þá límtrésgrind hússins. Fréttablaðið/pjetur
Óvissa ríkir um eignarhald og fjármögnun vatnsátöppunarverksmiðju Iceland Glacier Products á Rifi á Snæfellsnesi. Verksmiðjuhúsið er fokhelt og var dyragötum og gluggum lokað fyrir rétt rúmum mánuði.

Iceland Glacier Products tapaði rúmum 118,7 milljónum króna í fyrra, samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins. Þetta var þriðja starfsár fyrirtækisins, sem hollenski tannlæknirinn Otto Spork stofnaði hér á landi. Þrátt fyrir að framkvæmdir hafi staðið yfir á Rifi í um þrjú ár er verksmiðjan ekki nálægt því að geta hafið framleiðslu á flöskuvatni. Þá hafa tæki til átöppunar ekki verið keypt svo vitað sé.

Spork rak vogunarsjóðinn Sextant Strategic Opportunities í Kanada um nokkurra ára skeið. Það rak nokkra undirsjóði, sem skráðir eru á Cayman-eyjum. Sjóðirnir fjármögnuðu byggingu átöppunarverksmiðjunnar á Rifi með lánveitingum. Þeir breyttu skuldum í hlutafé á síðasta ári. Við það eignuðust þeir sextíu prósenta hlut í Iceland Glacier Products. Riambel, fjárfestingarfélag Sporks sem skráð er í Lúxemborg, á 23,7 prósenta hlut. Ekki liggur fyrir hver á tæp þrettán prósent en hluturinn er skráður á félagið Hermitage. Félög tengd Spork eru jafnframt helstu kröfuhafar.

Kanadíska verðbréfaeftirlitið hóf að rannsaka fjármögnunarfyrirtæki Sporks fyrir um tveimur árum. Samkvæmt málsgögnum lögðu í kringum 250 einstaklingar og aðrir fjárfestar um áttatíu milljónir dala, jafnvirði tæpra níu milljarða króna, til fyrirtækis Sporks í von um væna ávöxtun. Spork mun hafa tekið sér margar milljónir dala í þóknunarkostnað, stýrt sjóðunum sem um hans eigið sparifé væri að ræða og hunsað tilkynningarskyldu til eftirlitsaðila.

Kanadíska verðbréfaeftirlitið kyrrsetti sjóði Sporks á Cayman-eyjum og í Kanada fyrir tæpum tveimur árum. Skiptastjóri í Kanada vinnur nú að slitum þeirra og leitar eftir því að selja eignir úr þeim, þar á meðal átöppunarverksmiðjuna, og greiða út til sjóðsfélaga. Óvíst er hvað þeir fá mikið til baka.

Þeir sem Fréttablaðið hefur rætt við og komið hafa að uppbyggingu verksmiðjunnar segja flestar áætlanir hafa gengið eftir og Spork, sem hafi sýnt verkinu mikinn áhuga, ávallt hafa staðið við sitt.

jonab@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×