Viðskiptaráð vill greiðsludreifingu aðflutnings- og vörugjalda 22. janúar 2010 09:24
Viðskiptaráð hefur undanfarið unnið að ýmsum hagsmunamálum íslensks atvinnulífs. Á meðal verkefna má nefna formlega beiðni til fjármálaráðuneytisins þess efnis að greiðsludreifing aðflutnings- og vörugjalda verði sem fyrst komið á fyrir árið 2010.Þetta kemur fram í frétt um málið á vefsíðu Viðskiptaráðs. Þar segir að beiðnin eigi rætur sínar að rekja til laga frá í fyrra þar sem slíkri dreifingu var komið á vegna greiðslu aðflutnings- og vörugjalda fyrir árið 2009.Með lögunum brást fjármálaráðuneytið við gjörbreyttum aðstæðum íslensks atvinnulífs vegna gengisfalls, samdráttar í eftirspurn og verðbólguskots og á hrós skilið fyrir skjót viðbrögð. Lögin mæltust afar vel fyrir hjá íslenskum fyrirtækjum og samtökum atvinnurekenda og einhugur var um skjóta afgreiðslu þeirra meðal allra flokka á Alþingi. Vonir Viðskiptaráðs standa til að ráðherra bregðist skjótt við og leggi fyrir Alþingi frumvarp af þessu tagi á fyrstu starfsdögum þingsins, enda er fyrsta greiðslutímabil þessara gjalda hafið með gjalddaga þann 15. mars næstkomandi. Með því að ákveða slíka dreifingu snemma árs og það fyrir árið í heild og með því að heimila fulla innsköttun munu stjórnvöld án efa létta mörgum fyrirtækjum róðurinn. Þá hefur Viðskiptaráð jafnframt óskað eftir því að fjármálaráðuneytið kanni hvort unnt sé að endurskoða, a.m.k. tímabundið, útreikning bifreiðahlunninda. Vegna gengisfalls krónunnar hafa mánaðarlegar skattgreiðslur starfsmanna af slíkum hlunnindum hækkað umtalsvert.Í ljósi þegar orðinnar kjararýrnunar og þar sem fyrirtæki hafa almennt ekki tök á að koma til móts við starfsmenn í þessari stöðu taldi ráðið rétt að vekja athygli ráðuneytisins á þessu máli, að því er segir í fréttinni.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira