Langtímaatvinnuleysi hefur þrettánfaldast á einu ári 15. janúar 2010 11:22 „
Eins við mátti búast þá heldur áfram að fjölga í hópi þeirra sem hafa verið atvinnulausir í meira en ár og í lok desember voru þeir alls 3.224 en höfðu verið 2.505 í lok nóvember. Þetta jafngildir því að þeim hafi fjölgað um 29% í mánuðinum. Þess má geta að á sama tíma fyrir ári síðan höfðu 255 einstaklingar verið án atvinnu í ár og hefur fjöldi þeirra þar með nánast 13 faldast á einu ári."Þetta segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem gluggað er í nýjustu tölur um atvinnuleysið frá Vinnumálastofnun.Greiningin segir að horfur eru á áframhaldandi fjölgun þessa hóps en 2.568 manns höfðu verið án atvinnu í 9 til 12 mánuði í lok desember. Þróun í þessa átt getur leitt til þess að erfiðara verður að vinda ofan af atvinnuleysinu þegar birtir til í efnahagslífinu, en að jafnaði fá þeir sem lengst hafa verið án atvinnu seinna vinnu en aðrir þegar atvinnuleysi fer minnkandi.Í lok desember voru 15.329 einstaklingar atvinnulausir og líkt og undanfarna mánuði var um helmingur þeirra sem hafði verið atvinnulaus í 6 mánuði eða lengur.Í desembermánuði bárust Vinnumálastofnun 5 tilkynningar um hópuppsagnir þar sem sagt var upp 167 manns og koma þær til framkvæmda á tímabilinu janúar til apríl. Er nú áætlað að um 113 manns muni missa vinnuna nú í janúar vegna hópuppsagna og 200 manns í febrúar.Ekki er við öðru að búast en að atvinnuleysi haldi áfram að aukast á næstunni, þá hvort tveggja vegna árstíðarsveiflu og vaxandi slaka í hagkerfinu. Yfirleitt versnar atvinnuástandið frá desember til janúar og samkvæmt Vinnumálastofnun benda nýskráningar fyrstu daganna í janúar til að svo verði raunin einnig í ár.Áætlar stofnunin að atvinnuleysi komi til með að verða á bilinu 8,6%-9,1% nú í janúar. Má því gera ráð fyrir að atvinnuleysi komi til með að aukast á næstu mánuðum og reiknum við með að það hámarki í mars/apríl 2010.
Mest lesið Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Lögreglustjórinn: Segir pabbabrandara, elskar krimmasögur og segir húmor vanmetinn Atvinnulíf Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Samstarf Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Viðskipti innlent Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Viðskipti innlent Hörður og Svala endurvekja Macland Viðskipti innlent U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Neytendur Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Sjá meira