Hagstæð kjör LSS lækka fjármagnskostnað sveitarfélaga 1. mars 2010 11:59
Kjörin sem sem Lánasjóður sveitarfélaga (LSS) fékk í útboði sínu á föstudaginn voru með þeim hagstæðustu sem honum hafa staðið til boða undanfarið ár. Ætti það að öðru óbreyttu að leiða til heldur lægri fjármögnunarkostnaðar þeirra sveitarfélaga sem sækja fjármögnun sína til hans þessa dagana.Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að góðar undirtektir voru við útboði Lánasjóðs sveitarfélaga á LSS24-bréfum og seldi sjóðurinn meira af bréfum en lagt hafði verið upp með. Eins og undanfarið þurfti LSS þó að sætta sig við u.þ.b. prósentustigs álag á ávöxtunarkröfu umfram sambærileg íbúðabréf.Fyrir útboðið hafði sjóðurinn ráðgert að selja LSS24-bréf fyrir 500 milljónir kr. að nafnvirði. Hins vegar bárust tilboð að fjárhæð ríflega 2,5 milljarða kr. í bréfin og var ákveðið að taka tilboðum að nafnvirði 742 milljónir kr. á ávöxtunarkröfunni 4,75%. Eftir útboðið er LSS24-flokkurinn orðinn tæplega 17,8 milljarðar kr. að stærð, en útgáfa bréfa í þeim flokki er helsta fjármögnunarleið LSS til lánveitinga fyrir sveitarfélög.Væntanlega hafa fréttir af fjárhagserfiðleikum Álftaness og kastljósið sem þau tíðindi beindu að fjárhag sveitarfélaga haft áhrif til hækkunar álags á LSS24-bréfin. Hins vegar er greiðsluflæði til LSS allvel tryggt þar sem sjóðurinn hefur veð í öllum tekjum sveitarfélaganna sem hann lánar.
Mest lesið „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Atvinnulíf „Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Viðskipti innlent Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Viðskipti innlent Fanney tekur við af Erni hjá Lex Viðskipti innlent Bein útsending: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Viðskipti innlent Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Viðskipti innlent Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Viðskipti erlent Óli Páll til APRÓ Viðskipti innlent Birgir Ómar Haraldsson er látinn Viðskipti innlent „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fanney tekur við af Erni hjá Lex „Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Bein útsending: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Óli Páll til APRÓ Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Birgir Ómar Haraldsson er látinn „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Sjá meira