Viðskipti innlent

Nýtt tæknisprotasetur opnar

Klak - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins opnar nýtt sprotasetur á morgun.

Opið hús verður hjá þeim sprotafyrirtækjum sem eru í setrinu en meðal fyrirtækja eru: Meniga - sem sérhæfir sig í hugbúnaði til að hjálpa við fjármál almennings, Amivox - sem býður upp á einfaldari og ódýrari samskipti, Eff2 - sérhæfir sig í myndgreiningu á netinu, T1 - hugbúnaðarhús sem þróar lausn á heilbrigðissviði, Vitver - þróar leikjavél byggða á gervigreind, Fafu - hannar leikföng og leiki fyrir börn byggt á fairtrade hugmyndafræði, 4x4 - þróar upplýsinga- og samskiptavef fyrir jeppafólk, Unimaze - þróar lausnir á rafrænum viðskiptum og Stúdia - þróar umsýslu- og kennsluvef fyrir háskóla. Nokkur fyrirtæki í Viðskiptasmiðjunni - Hraðbraut nýrra fyrirtækja munu einnig kynna starfsemi sína. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Sprotasetrið er í Ofanleiti 2, gamla HR, og opnar klukkan fjögur á morgun, laugardag.

Opnunin er hluti af ráðstefnunni Driving Sustainability sem haldin er dagana 16.- 18. september, sem hefur það hlutverk að vekja athygli á möguleikum Íslands í að vera leiðandi í orkumálum og samgöngum í heiminum. Í lok ráðstefnunnar verður opið hús í Ofanleiti 2, laugardaginn 18. september þar sem dagskrá stendur frá 9 - 17:00. Opnunin á Tæknisprotasetri Klaks í O2 verður í lok dagskrárinnar.

Klak er dótturfélag Nýherja.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×