Lýstar kröfur í þrotabú Björgólfs yfir 100 milljarðar Þorbjörn Þórðarson skrifar 21. janúar 2010 12:11
Sveinn Sveinsson, skiptastjóri þrotabús Björgólfs Guðmundssonar, segir að heildarfjárhæð lýstra krafna í þrotabúið nemi nú rúmlega 100 milljörðum króna.Lýstar kröfur í þrotabú Björgólfs Guðmundssonar eru núna rúmlega 100 milljarðar króna, að sögn Sveins Sveinssonar, skiptastjóra þrotabúsins. Sveinn sagði í samtali við fréttastofu að ekki lægi fyrir hversu mikið fengist upp í kröfur en skilanefnd Landsbankans er langstærsti kröfuhafinn með kröfur upp á rúmlega 70 milljarða króna.Stærstur hluti þeirrar upphæðar eru persónulegar ábyrgðir, að sögn Sveins. Ekki er um að ræða kröfur vegna lánveitinga Landsbankans til stærsta eiganda síns.Að sögn Sveins hefur þrotabúið ekki látið rifta neinum samningum milli tengdra aðila. Aðspurður hvort búast mætti við því að þrotabúið myndi reyna á riftun sagði hann ekki búast við því að svo stöddu, ekki hefðu komið upp tilvik sem kölluðu á slíkt.Viðskiptablaðið greinir frá því í dag að vonir séu helst bundnar við að eignir finnist í félagi Björgólfs á Kýpur, Bell Global Investment. Bell Global hélt utan um hlut Björgólfs í Bravó-bruggverksmiðjunum í Rússlandi á sínum tíma og átti helmingshlut í Samson, eignarhaldsfélagi Landsbankans.Félag Björgólfs á tæpan milljarð króna á bankainnstæðu hjá Landsbankanum í Lúxemborg, en eignir bankans voru kyrrsettar eftir hrun og hefur skilanefnd Landsbankans ekki getað hreyft við þeim.Viðskiptablaðið greinir jafnframt frá því að Björgólfur sé talinn eiga hlut í prentsmiðjunni Typographia-MDM í Rússlandi í gegnum erlent dótturfélag Bell Global, en um sé að ræða þriðju stærstu prentsmiðju Rússlands. Eru kröfuhafar sagðir binda vonir við að eitthvað fáist upp í kröfur þeirra með sölu á eignarhlut Björgólfs í prentsmiðjunni.Prentsmiðjunni er nú stýrt af Magnúsi Þorsteinssyni, fyrrum viðskiptafélaga Björgólfs sem nú er búsettur í Pétursborg, en bú hans hefur einnig verið tekið til gjaldþrotaskipta hér á landi eins og kunnugt er.Þess má geta að Björgólfur Guðmundsson mat persónulegar eignir sínar á 143 milljarða króna í byrjun árs 2008.
Mest lesið Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Viðskipti innlent Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Viðskipti erlent Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Samstarf Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Viðskipti innlent Skatturinn birtir álagningu í dag Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Sjá meira