Losaði bréf í FL Group úr bókunum í miðju hruni Þorbjörn Þórðarson skrifar 5. mars 2010 19:00
Glitni tókst að fegra stöðu sína tveim dögum eftir þjóðnýtingu bankans og fimm dögum fyrir bankahrun, með því að losa hlutabréf í FL Group upp á 14 milljarða króna til félagsins Styrks Invests gegn láni með veði í bréfunum sjálfum. Styrkur Invest er stofnað á grunni félagsins BG Capital en helsti tilgangur félagsins var að fjárfesta í hlutabréfum í FL Group og var félagið stærsti hluthafi félagsins fyrir banakhrunið og átti 39 prósenta hlut. Félagið skuldar núna 47 milljarða króna, en engar eignir eru til staðar. Þarna er um að ræða lánveitingar frá lífeyrissjóðunum, lán frá Landsbankanum upp á samtals tólf milljarða króna og lán frá Baugi upp á tæplega tíu milljarða króna, svo fátt eitt sé nefnt. Tvær þessara krafna eru kröfur samtals upp á 14 milljarða króna frá Glitni banka, en um er að ræða kröfur vegna lána sem veitt voru til Styrks Invests hinn 1. október 2008 til að kaupa hlutabréf í FL Group af Glitni banka og voru lánin tryggð með veði í bréfunum sjálfum. Þetta var tveimur dögum eftir þjóðnýtingu Glitnis sem var hinn 29. september og fimm dögum fyrir bankahrunið, en neyðarlögin voru sett hinn 6. október. Um var að ræða nátengda aðila því Styrkur var stærsti hluthafinn í FL Group og FL Group var stærsti hluthafinn í Glitni. Leiða má að því líkum að um sé að ræða framlengingu á eldri framvirkum samningi, en ekki fengust upplýsingar um það í dag. Jafnframt er ekkert í bókhaldi þrotabús Styrks Invest sem staðfestir það. Samkvæmt upplýsingum frá skilanefnd Glitnis banka er hins vegar hæpið að um nýtt lán hafi verið að ræða. Það var þó samdóma álit þeirra sem fréttastofa ræddi við, bæði hagfræðinga og löggiltra endurskoðenda, að lánveiting til hlutafélags liti betur út í bókhaldi Glitnis banka í miðju bankahruninu en verðlaus hlutabréfaeign í FL Group.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira