Lánveitingu í Búðarhálsvirkjun enn frestað 27. september 2010 12:00 Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Stjórn Evrópska fjárfestingarbankans frestaði enn og aftur í síðustu viku að afgreiða lán til Landsvirkjunar sem ætlað var til að fjármagna framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun. Fyrr í sumar var komið á framfæri skilaboðum til íslenskra stjórnvalda um að lánveitingin væri háð lausn Icesave-deilunnar. Mánuður er liðinn frá því tilboð voru opnuð í stærstu byggingarþætti Búðarhálsvirkjunar, smíði stöðvarhúss, gerð aðrennslisganga og stíflu. Sá fyrirvari er á útboðinu að ekki verður gengið til samninga við neinn bjóðanda á grundvelli tilboðanna fyrr en fjármögnun er tryggð. Landsvirkjun hefur í því sambandi meðal annars horft til Evrópska fjárfestingarbankans. Búið er að semja um alla þætti lánsins, þar á meðal vexti, og hefur þess verið lengi beðið að stjórn bankans staðfesti lánveitinguna. Málið var tekið fyrir á fundi stjórnar bankans síðastliðinn þriðjudag og varð niðurstaðan sú að fresta málinu. Þetta er í ekki í fyrsta sinn sem slíkt gerist. Um miðjan ágústmánuð bárust þær fréttir að stjórn bankans hefði frestað afgreiðslu lánsins en um leið komið á framfæri skilaboðum til íslenskra ráðamanna um að lánveitingin væri háð því að stjórn bankans vildi sjá merki þess að líkur væru á að Íslendingar næðu samkomulagi við Breta og Hollendinga um Icesave-reikningana. Ljóst er að þessi ákvörðun evrópska fjárfestingarbankans í síðustu viku er enn eitt áfallið fyrir tilraunir stjórnvalda til að koma stórframkvæmdum í gang í landinu. Innan Landsvirkjunar reyna menn þó að afla lánsfjár frá fleiri aðilum og útiloka ekki að það takist á næstunni.
Mest lesið Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Viðskipti innlent Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Viðskipti innlent Origo kaupir Maven Viðskipti innlent Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Viðskipti innlent Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Viðskipti innlent Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Viðskipti innlent Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Viðskipti innlent Hvað á að gera við fermingarpeningana? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Sjá meira