Eru hætt í stjórn en bera áfram ábyrgð 29. maí 2010 03:00 Eitthvað er um að stjórnarmenn reyni að komast úr stjórnum illa staddra félaga áður en þau fara í þrot.Fréttablaðið/Anton
Ríflega 400 íslensk fyrirtæki eru án skráðra stjórnar-manna, samkvæmt upplýsingum frá Creditinfo. Þetta þýðir að fyrrverandi stjórnarmenn, sem hafa sagt sig úr stjórnum félaganna, bera í raun ábyrgð á þeim þrátt fyrir að telja sig lausa allra mála með úrsögn sinni. Ef enginn á sæti í stjórn fyrirtækis fellur ábyrgð á fyrirtækinu, lögum samkvæmt, á þá sem áður voru í stjórninni. Því þarf maður sem segir sig úr stjórn félags að gæta að því að stjórn sé enn starfandi í félaginu. Ef aðeins einn stjórnar-maður er í félagi þarf hann að sjá til þess að einhver taki við af honum, slíta félaginu eða setja það í þrot. „Menn geta ekki hlaupið frá þessu, lögin ganga út frá því að það sé alltaf stjórn í félögum,“ segir Lára V. Júlíusdóttir hæstaréttarlögmaður. „Ef félag verður stjórnlaust á Hlutafélagaskrá að grípa inn í, aðvara, veita frest og afskrá svo félagið.“ Samkvæmt lögum um einkahlutafélög á Hlutafélagaskrá að grípa inn í séu engir skráðir í stjórn félags. Hlutafélagaskrá á fyrst að aðvara þá sem ætla má að séu í forsvari eða fyrrverandi stjórnarmenn um að til standi að afskrá félagið. Bregðist þeir ekki við innan tilskilins tímafrests ber að afskrá félagið. Í samantekt Creditinfo kemur fram að ljóst sé að talsverður fjöldi fólks geri sér ekki grein fyrir því að það beri ábyrgð á fyrirtæki þrátt fyrir að það telji sig vera hætt í stjórn. Eftir úrsögn verði að fylgja henni eftir með því að ganga úr skugga um að nýr stjórnarmaður sé skipaður. Til viðbótar við þau rúmlega 400 félög sem ekki eru með neina skráða stjórnarmenn eru 150 til 200 fyrirtæki bara með varamenn skráða í stjórn. Algengt er að stjórnarmenn hætti í stjórnum fyrirtækja sem eru á leið í þrot svo nafn þeirra komi ekki fram í rekstrarsögu fyrirtækisins. Lára segir alltaf eitthvað um það að fólk segist í raun hafa verið blekkt til að setjast í stjórn fyrirtækja skömmu fyrir óumflýjanlegt gjaldþrot, til dæmis starfsmenn félagsins. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Sjá meira