NBA: Boston burstaði Cleveland - LeBron á leiðinni í sumarfrí? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. maí 2010 09:00 Kevin Garnett var góður í nótt. Mynd/AP
Boston Celtics fór illa með LeBron James og félaga í Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni í nótt og er Boston því komið 3-2 yfir í einvíginu. Boston vann leikinn með 32 stiga mun, 120-88, og getur tryggt sér sæti í úrslitum Austurdeildarinnar með sigri á heimavelli í næsta leik sem fer fram aðfaranótt föstudagsins. Ray Allen var með 25 stig, Paul Pierce skoraði 21 stig og Kevin Garnett var með 18 stig í leiknum í nótt. Pierce var einnig með 11 fráköst og 7 stoðsendingar. Cleveland hélt Rajon Rondo stigalausum í fyrri hálfleik en hann skoraði 16 stig í þeim seinni. „Við megum ekki koma hingað aftur. Við verðum að líta á næsta leik eins og sjöunda leik. Við getum ekki leyft besta liðinu í deildarkeppninni að fá sjöunda leikinn á heimavelli. Það er bara ekki mögulegt," sagði Boston-maðurinn Kevin Garnett sem hefur verið frábær í einvíginu. Shaquille O'Neal var stigahæstur hjá Cleveland með 21 stig og 4 varin skot. LeBron James skoraði aðeins 15 stig í nótt og hitti bara úr 3 af 14 skotum sínum. „Ég klikkaði á mörgum opnum skotum sem ég set vanalega niður. Menn sjá mig ekki oft spila svona og þegar það gerist þá kemur það öllum mikið á óvart," sagði LeBron James daufur eftir leikinn. „Við erum upp við vegg. Við höfum unnið í Boston áður og verður nú bara að gera það aftur," sagði James.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira