Skilanefnd vann mál og fær aðgang að 100 milljörðum Þorbjörn Þórðarson skrifar 9. mars 2010 18:45
Skilanefnd Landsbankans hefur með dómi í Amsterdam fengið full yfirráð yfir 100 milljarða króna útibúi Landsbankans í Hollandi. Féð á að ganga upp í Icesave. Hollensk stjórnvöld beittu sér fyrir því strax við bankahrunið að tveir hollenskir skiptastjórar tækju við skiptum útibús Landsbankans þar í landi og hafa þeir síðan stjórnað því. Skilanefnd Landsbankans hefur frá byrjun haldið því fram að skipun þeirra hafi verið ólögmæt og Héraðsdómur Amsterdamborgar hafnaði í gær að framlengja skipunartíma skiptastjóranna tveggja og dæmdi því skilanefndinni í vil. „Þetta hefur geysimikla þýðingu fyrir okkur. Þetta er búið að vera langt stríð. Við höfum andmælt þessari skipan frá upphafi," segir Lárentsínus Kristjánsson, formaður skilanefndar Landsbankans. Lárentsínus segir að niðurstaðan sé sú að nú fari skipti á útibúinu alfarið samkvæmt íslenskum lögum og greiðslustöðvun Landsbankans sé viðurkennd. Hann segir að svo lengi sem þessari niðurstöðu verði ekki skotið á æðra dómstig, sem takmarkaðar líkur eru á, fái skilanefndin full yfirráð yfir útibúinu í Hollandi, en um er að ráða vaxtaberandi útlánasafn til fyrirtækja í Hollandi og víðar. Er mikið af peningum í útibúinu? „Ég held ég muni það rétt að það séu yfir hundrað milljarðar í lánabókinni þarna í Amsterdam," segir Lárentsínus. Þessi niðurstaða mun einnig þýða að hægt verður að skera niður kostnað við búskiptin í Hollandi. „Þessi tvöfalda slitameðferð hefur kostað bú Landsbankans vel yfir sjö hundruð milljónir. Það verður mikill léttir að losna við þann kostnað," segir Lárentsínus.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira