Bankamenn í stjórnum 48 fyrirtækja 25. febrúar 2010 04:15 Ábyrgðarmenn bankanna. Birna Einarsdóttir Íslandsbanka, Finnur Sveinbjörnsson Arion og Ásmundur Stefánsson Landsbankanum.
Stóru viðskiptabankarnir þrír, Arion, Íslandsbanki og Landsbankinn, hafa að undanförnu skipað fjölda fólks í stjórnir samtals 48 fyrirtækja. Hafa þær ráðstafanir komið í kjölfar yfirtöku bankanna á fyrirtækjunum, að hluta eða öllu leyti. Íslandsbanki hefur skipað fólk í stjórnir 21 fyrirtækis, Landsbankinn í átján og Arion í níu. Að auki hefur Arion sett yfirtekna eignarhluti í fyrirtækjum í sérstök félög sem hafa eigin stjórnir. Þessar upplýsingar koma fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur Samfylkingunni. Ráðherra leitaði til bankanna sjálfra um svör. Í svari Íslandsbanka kemur fram að bankinn hefur ekki sett sér reglur um stjórnarskipanir og jafnframt að fjórðungur stjórnarmanna á hans vegum eru konur. Arion greinir aðeins frá stjórnarskipan í félögum sem „hafa verið í opinberri umræðu“ og ber við ákvæðum laga um trúnaðarskyldu. Segist bankinn stefna að jafnrétti kynjanna við skipun í stjórnir. Af gögnum bankans má ráða að konur skipa tvö stjórnarsæti af þeim fjórtán sem bankinn hefur ráðstafað í fyrirtækjum sem teljast til úrvinnsluverkefna. Landsbankinn kveðst hafa sett sér virka jafnréttisstefnu sem gildi um skipun manna í stjórnir. Hún taki mið af jafnréttislögum. Engu að síður kemur fram í upptalningu bankans á stjórnarfólki að af 47 stjórnarsætum sitja konur í þremur. - bþs
Mest lesið Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Sjá meira