Áfram fjölgar í hópi langtímaatvinnulausra 16. apríl 2010 08:59 Þróun í þessa átt getur leitt til þess að erfiðara verður að vinda ofan af atvinnuleysinu þegar birtir til í efnahagslífinu, en að jafnaði fá þeir sem lengst hafa verið án atvinnu seinna vinnu en aðrir þegar atvinnuleysi fer minnkandi.
Í lok mars voru alls 16.482 einstaklingar atvinnulausir og hafði um 52% þeirra verið án atvinnu í 6 mánuði eða lengur sem er nokkuð hærra hlutfall en verið hefur síðustu mánuði. Líkt og við mátti búast þá heldur áfram að fjölga í hópi þeirra sem hafa verið atvinnulausir í meira en ár. Í lok mars voru þeir 4.601 samanborið við 4.365 í lok febrúar.Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að ljóst sé að þetta er mikill viðsnúningur frá því sem áður var en á sama tíma fyrir ári síðan höfðu 333 einstaklingar verið án atvinnu í ár. Telja má líklegt að áfram muni fjölga í þessum hópi þar sem alls höfðu 1.235 mann verið án atvinnu í 9-12 mánuði í lok mars.Þróun í þessa átt getur leitt til þess að erfiðara verður að vinda ofan af atvinnuleysinu þegar birtir til í efnahagslífinu, en að jafnaði fá þeir sem lengst hafa verið án atvinnu seinna vinnu en aðrir þegar atvinnuleysi fer minnkandi.Í niðurstöðum könnun sem Samtök atvinnulífsins gerðu fyrr í þessum mánuði meðal aðildarfyrirtækja og birtu í gær kom fram að störfum á almennum vinnumarkaði gæti fækkað um rúm 1.500 á þessu ári. Fyrirtækin í könnuninni eru í sjávarútvegi, iðnaði, byggingastarfsemi, veitustarfsemi, verslun og samgöngum, hótel og veitingahúsarekstri og svo fjármála- og tryggingastarfsemi. Áætlað er að um 87 þúsund manns starfi um þessar mundir í þessum atvinnugreinum.Atvinnuleysi nú í mars og svo mánuðinum á undan er það mesta sem mælst hefur hér á landi. Oftast breytist atvinnuástandið lítið frá mars til apríl. Þó var síðastliðið ár undantekning en þá jókst atvinnuleysið lítilsháttar vegna efnahagshrunsins haustinu áður og fór atvinnuleysi úr 8,9% í 9,1% á þessu tímabili. Áætlar Vinnumálastofnun að atvinnuleysi nú í apríl breytist lítillega frá fyrri mánuði og verði á bilinu 9,0%-9,4%.
Mest lesið Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Von á hóflegum hagvexti næstu árin Viðskipti innlent Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fleiri fréttir Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Sjá meira