Gjaldþrot fyrirtækja umtalsvert færri en nýskráningar 28. janúar 2010 12:09
Fjöldi gjaldþrota fyrirtækja á árinu 2009 var umtalsvert færri en nýskráningarnar þó svo að gjaldþrotin hafi ekki verið fleiri í a.m.k. tvo áratugi, eða eins langt aftur og tölur Hagstofunnar ná.Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Eins og fram kom í morgun birti Hagstofan upplýsingar um að á síðasta ári voru nýskráð 2.642 hluta- og einkahlutafélög sem er tæplega 3% fleiri félög en árið á undan. Er þetta nokkuð mikil fjölgun ef mið er tekið af efnahagsástandinu.Í Morgunkorninu segir að líkt og undanfarin ár voru flestar nýskráningar í starfsemi eignarhaldsfélaga, leigu atvinnuhúsnæðis og í byggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. Þannig voru skráð rúm 300 ný félög í starfsemi eignarhaldsfélaga, 230 í leigu atvinnuhúsnæðis og um 150 í byggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. Er þetta um 26% nýskráðra félaga á árinu sem er nokkuð minni en hlutdeild þeirra var á árinu 2008 þegar þriðjungur nýskráðra félaga var í þessum þremur atvinnugreinum.Hinsvegar höfðu alls 823 fyrirtæki verið úrskurðuð gjaldþrota á fyrstu 11 mánuðum ársins 2009 sem eru 23% fleiri fyrirtæki en á sama tímabili 2008. Ríflega fjórðungur allra gjaldþrota fyrirtækja á árinu 2009 er í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð en það er einmitt í þeirri starfsemi sem nær flest félög voru nýskráð á síðasta ári.Þannig voru 229 félög gjaldþrota í þessari starfsemi á fyrstu 11 mánuðum síðastliðins árs en 275 félög nýskráð í þessari atvinnustarfsemi á sama tíma. Þess má geta að á morgun mun Hagstofan birta tölur um fjölda gjaldþrota fyrirtækja í desember 2009.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Valin vinsælust: „Lopapeysan og þetta reddast sjarminn einfaldlega selur“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Sjá meira