Samkeppniseftirlitið fór í húsleit hjá Íslandspósti 28. janúar 2010 19:48
Flokkur manna frá Samkeppniseftirlitinu fór og gerði húsleit hjá Íslandspósti í gærmorgun. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, staðfesti að húsleitin væri liður í rannsókn á hugsanlegri misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Hann segir þessa rannsókn standa yfir og ekki sé á þessu stigi hægt að áætla hvenær henni ljúki. Þetta kemur fram á vefsíðu RUV. Þar segir að ábendingar og kvartanir hafi borist Samkeppniseftirlitinu frá fyrirtækjum í samkeppni við Íslandspóst. Þær lúta að því að Íslandspóstur hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína til að byggja upp samkeppni um flutninga. Hluti póstflutninga er bundinn einkaleyfi, það eru bréfasendingar, og í krafti þeirra hefur Íslandspóstur, einkaleyfishafinn, sterka stöðu á flutningamarkaðnum. Ennfremur segir á RUV að fyrir nokkrum árum fékk Íslandspóstur boð um það frá Samkeppnisstofnun, forvera Samkeppniseftirlitsins, að rekstur einkaleyfisbundinna póstflutninga skyldi aðskilinn rekstri samkeppnisflutninga, einmitt til að koma í veg fyrir að Íslandspóstur gæti nýtt einkaleyfisstöðu sína til að veita keppinautum í öðrum flutningum óeðlilega samkeppni. Nú virðist sem keppinautar Íslandspósts telji að fyrirtækið virði ekki lengur þessi fyrirmæli og nýti einkaleyfisstöðu sína til að byggja upp dýrar flutningamiðstöðvar í samkeppni við þá og hafa þeir kvartað til Samkeppniseftirlitsins.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Valin vinsælust: „Lopapeysan og þetta reddast sjarminn einfaldlega selur“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Sjá meira