Hriplek vörn hjá endurskoðendum 3. desember 2010 06:00 Herdís Hallmarsdóttir lengst til hægri á sæti í slitastjórn Landsbankans.
Endurskoðendur geta krafist allra þeirra gagna sem þeir telja sig þurfa á að halda við endurskoðun uppgjöra. Þeir eiga ekki að sætta sig við framlögð gögn viðskiptavina sinna. „Þeir eiga ekki að láta sér nægja eitthvað sem kúnninn leggur fram," segir Bjarni Frímann Karlsson, lektor í reikningshaldi við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Hann leggur áherslu á að verði endurskoðendur varir við eitthvað athugavert í uppgjörum viðskiptavina sinna eigi þeir að kalla eftir gögnum. Enginn viðskiptavinur á að geta neitað að verða við ósk þeirra, að sögn Bjarna. Slitastjórn Landsbankans hefur tilkynnt stjórn PricewaterhouseCoopers (PwC) um ætlaða bótaskyldu vegna vanrækslu við endurskoðun á reikningum bankans árið 2007 auk þess að hafa ekki gert fyrirvara við árshlutauppgjör í aðdraganda bankahrunsins árið 2008. Herdís Hallmarsdóttir, lögmaður sem sæti á í slitastjórn Landsbankans, segir að óskað hafi verið eftir vinnugögnum PwC. Þeirri ósk hafi verið hafnað. „Vinnugögnin gætu sýnt fram á að eitthvað af því sem við höldum fram er ekki rétt," segir hún. Í yfirlýsingu PwC segir að hlutverk fyrirtækisins hafi verið að láta í té álit á ársreikningum og hafa skoðun á hvort reikningsskil væru í samræmi við lög og reglur. Tekið hafi verið mið af þeim upplýsingum sem þeir höfðu aðgang að. „Maður hefur ekki allar upplýsingar. Þessi afsökun endurskoðenda virðist harla léttvæg," segir Bjarni. jonab@frettabladid.is
Fréttir Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira