Heiður þeim sem heiður ber Guðmundur Andri Thorsson skrifar 13. september 2010 10:00 Draga má saman málsvörn bankamannanna sem settu Ísland á hausinn í tvær setningar: "Ég var ekki stöðvaður" og "það var ekki passað upp á mig." Þeir eru eins og maður sem ekur á ofsahraða og drepur mann og segir svo: Þetta var lögreglunni að kenna, hún átti að stöðva mig. Jafnvel: þetta var vegagerðinni að kenna, þessir vegir eru ekki gerðir fyrir svona hraðakstur. En þetta er þeim að kenna. Ábyrgð á glæpum liggur hjá þeim sem fremja þá. Líka hjá þeim sem hvetja til þeirra, gera þá mögulega, koma ekki í veg fyrir þá, en fyrst og fremst hjá glæpamönnunum. Sem stendur hefur varla nokkur sætt ákæru vegna Hrunmála nema níu mótmælendur sem lentu í stimpingum við þingverði á Alþingi. En nú á að leiða fram nýja syndahafra. Það eru þrír eða fjórir ráðherrar í ríkisstjórn Geirs Haarde sem mistókst að afstýra bankahruni haustið 2008. Ekki þarf að hafa mörg orð um ábyrgð þeirra; þau brugðust of seint og illa við viðvörunum vegna trúgirni, ranghugmynda, þjóðblindu, vonleysis eða lítilþægni gagnvart auðmönnunum sem á þessum tíma stjórnuðu landinu. Kannski voru þau "bjartsýnisafglapar" eins og Sigfús Daðason orðaði það um þá íslensku hugmynd að hlutir reddist. Þetta fólk brást kjósendum sínum og sjálfu sér, eins og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir orðaði það sjálf þegar hún kvaddi Samfylkinguna og stjórnmálin og gekkst við ábyrgð sinni á sínum tíma. Þetta fólk á ekki afturkvæmt í stjórnmál, sem er í sjálfu sér grimm refsing fyrir fólk sem notið hefur mikils trúnaðar. Fenrisúlfur groupVera má að ástæða sé til að draga þau fyrir Landsdóm. Og vera má að sakir fyrnist. En samt?… Árni Mathiesen verður dreginn fyrir Landsdóm en ekki Finnur Ingólfsson. Björgvin G. Sigurðsson á að mæta fyrir dómi en ekki Valgerður Sverrisdóttir. Geir Haarde er kvaddur fyrir dóm en ekki Halldór Ásgeirsson. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skal ákærð af Alþingi en ekki Davíð Oddsson. Davíð er núna ritstjóri Morgunblaðsins. Halldór Ásgrímsson gegnir trúnaðarstörfum í nafni þjóðarinnar erlendis. Valgerður Sverrisdóttir situr í sæmd sinni. Finnur Ingólfsson heldur milljörðunum sem hann hafði upp úr krafsinu. Þetta er fólkið sem seldi þjóðbankana. Í einhverjum hrossakaupum við Framsókn telur Atlanefnd ekki ástæðu til að rannsaka frekar þá einkavæðingu. En þar liggja hins vegar rætur ófarnaðarins. Við einkavæðingu bankanna voru leyst úr læðingi þau öfl sem komu Íslandi á hausinn. Fyrrgreint fólk sem situr í náðum seldi fjöregg þjóðarinnar í hendur viðskiptafélögum Miðgarðsormi og Fenrisúlfi group. Enn að störfum Samfylkingin - Ingibjörg Sólrún og þau hin - var í þessu dæmi öllu svolítið eins og manneskja sem send er til að stöðva brjálað partí á efstu hæðinni en er boðið inn og sogast smám saman inn í fjörið, og fyrr en varir farin að dansa uppá borði og og góla með. En ósýnilegi endurskoðendaherinn sem kvittaði upp á og orti excel-skáldskapinn er sem sagt enn að störfum. Lögfræðingarnir sem hjálpuðu við að fela slóðirnar eru enn að störfum. Viðskiptafræðingarnir sem bjuggu til svindlflétturnar eru enn að störfum. Hugmyndafræðingarnir sem gerðu peningatrú að ríkjandi hugmyndafræði samfélagsins eru enn að störfum. Háskólakennararnir sem framleiddu hugmyndalegu réttlætingarnar fyrir útrásinni sem eru enn að störfum. Útrásarvíkingarnir ganga lausir. Hrunið varð ekki bara vegna þess að Geir Haarde sé svo mikill sauður. Heiður þeim sem heiður ber. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Fastir pennar Guðmundur Andri Thorsson Skoðanir Mest lesið Tryggja þarf öfluga endurhæfingu fyrir einstaklinga með krabbamein Ragna Kristín Guðbrandsdóttir Skoðun Bankarnir og þjáningin Ingólfur Sverrisson Skoðun Ljósið – samtök úti í bæ Jens Garðar Helgason Skoðun Ég er ekki hættuleg – ég er veik Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir Skoðun Er hægt að bíða lengur? Björg Baldursdóttir Skoðun Tími til að endurhugsa hagvöxt! Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffia S. Sigurgeisdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir Skoðun Tími til að fagna, minna á og hvetja áfram – 50 ár frá Kvennaverkfallinu Ólöf Kristjánsdóttir Skoðun Það er munur á veðmálum og veðmálum Auður Inga Þorsteinsdóttir Skoðun Á hvaða vegferð er heilbrigðisráðherra? Kjartan Helgi Ólafsson Skoðun Gefum í – því unglingarnir okkar eiga það skilið Skoðun
Tryggja þarf öfluga endurhæfingu fyrir einstaklinga með krabbamein Ragna Kristín Guðbrandsdóttir Skoðun
Tími til að endurhugsa hagvöxt! Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffia S. Sigurgeisdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir Skoðun
Tími til að fagna, minna á og hvetja áfram – 50 ár frá Kvennaverkfallinu Ólöf Kristjánsdóttir Skoðun
Tryggja þarf öfluga endurhæfingu fyrir einstaklinga með krabbamein Ragna Kristín Guðbrandsdóttir Skoðun
Tími til að endurhugsa hagvöxt! Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffia S. Sigurgeisdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir Skoðun
Tími til að fagna, minna á og hvetja áfram – 50 ár frá Kvennaverkfallinu Ólöf Kristjánsdóttir Skoðun