Viðskipti innlent

Vöruskiptin hagstæð um 7 milljarða í ágúst

Í ágústmánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 41,8 milljarða króna og inn fyrir 34,8 milljarða króna. Vöruskiptin í ágúst voru því hagstæð um 7,0 milljarða króna. Í ágúst 2009 voru vöruskiptin hagstæð um tæpa 11,3 milljarða króna á sama gengi.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að fyrstu átta mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 363,2 milljarða króna en inn fyrir 287,7 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 75,5 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 54,1 milljarð á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 21,4 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Fyrstu átta mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 39 milljörðum eða 12,0% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 39,1% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,3% meira en á sama tíma árið áður.

Útfluttar iðnaðarvörur voru 56,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 34,9% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.

Fyrstu átta mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings 17,5 milljörðum eða 6,5% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru, fjárfestingarvöru og eldsneyti og smurolíum en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×