Jón Ásgeir skorar á Steinunni að skýra mál sitt 30. september 2010 12:18 Jón Ásgeir Jóhannesson.
Jón Ásgeir Jóhannesson skorar á Steinunni Guðbjartsdóttur, formann slitastjórnar Glitnis, að tilgreina þá peninga og eignir sem hún og rannsóknarfyrirtækið Kroll segjast hafa fundið. Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi var haft eftir Steinunni að Kroll telji sig hafa fundið eignir sem vísbendingar séu um að tilheyri sjömenningunum sem slitastjórnin hefur stefnt fyrir dómi í New York. Jón Ásgeir er einn sjömenninganna og er honum ekki kunnugt um þessar eignir að eigin sögn. „Hvar eru þessir fjármunir? Mér er ekki kunngt um þessar eignir en þætti vænt um ef Steinunn og starfsmenn Kroll hafa fundið peninga og eignir sem mér tilheyra og ekki hefur verið gerð grein fyrir áður. Ég veit að það mun reynast erfitt því þessi verðmæti eru ekki til," segir Jón Ásgeir meðal annars. Óljósar aðdróttanir Hann gagnrýnir slitastjórnina sem virðist ekki geta setið á sér að koma með „óljósar aðdróttanir" í sinn garð nær vikulega. „Á sama tíma heldur slitastjórnin því fram að hún reki málið ekki í fjölmiðlum," bætir hann við. „Ef slitastjórnin hefur komist að því, að ég eða aðrir eigi eignir erlendis sem fengnar hafa verið með ólögmætum hætti, þá skora ég á hana að tilkynna þarlendum og innlendum yfirvöldum um það," segir hann einnig. „Af hverju hefur það ekki verið gert? Jú, vegna þess að það eru engar eignir til sem voru fengnar með ólögmætum hætti." Misheppnuð veiðiferð Að mati Jóns Ásgeirs mun „þessi misheppnaða veiðiferð" slitastjórnarinnar engu skila þrátt fyrir mikinn tilkostnað, en Jón segir að þegar sé búið að eyða 1.850 milljónum króna í kostnað vegna málaferlanna í New York. „Fyrir þá tölu mætti kaupa ágætan togara. Ég veit að kröfuhafar hafa óskað eftir upplýsingum, um kostnað vegna málaferlanna í New York og mögulegar heimtur, án árangurs. Af hverju er Steinunn ekki tilbúin að veita kröfuhöfum, sem eru vinnuveitendur hennar, þessar upplýsingar? Það hlýtur að vera rannsóknarefni út af fyrir sig," segir Jón að lokum. Sjömenningarnir sem stefnt hefur verið eru þau Jón Ásgeir Jóhannesson, Þorsteinn Jónsson, Jón Sigurðsson, Lárus Welding, Pálmi Haraldsson, Hannes Smárason og Ingibjörg Pálmadóttir. Yfirlýsingin frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni er hér að neðan í heild sinni:
Tengdar fréttir Kroll telur sig hafa fundið faldar eignir Jóns Ásgeirs og félaga Slitastjórn Glitnis telur sig hafa fundið eignir sem tilheyra sjömenningunum sem hún hefur stefnt fyrir dómi í New York. Slitastjórnin telur sig geta endurheimt töluverða fjármuni í þeirra eigu, vinni hún málið fyrir dómi. 29. september 2010 18:32 Mest lesið Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira
Kroll telur sig hafa fundið faldar eignir Jóns Ásgeirs og félaga Slitastjórn Glitnis telur sig hafa fundið eignir sem tilheyra sjömenningunum sem hún hefur stefnt fyrir dómi í New York. Slitastjórnin telur sig geta endurheimt töluverða fjármuni í þeirra eigu, vinni hún málið fyrir dómi. 29. september 2010 18:32