Björgun Eik Banki í Færeyjum komin í uppnám 30. september 2010 14:40
Dönsk stjórnvöld hafa hafnað hugmyndum Færeyinga um hvernig standa eigi að björgun Eik Banki í Færeyjum. Þar með er málið allt komið í uppnám og líkur aukast á því að bæði Eik Banki og Eik Bank, dótturbankinn í Danmörku lendi, í höndum bankaumsýslu Danmerkur (Finansiel Stabilitet). Þetta kemur fram á business.dk. Þar segir að hugmyndir Færeyinga hafi gengið út á að skilja í sundur ábyrgðir að baki báðum bönkunum og þannig bjarga starfseminni á Færeyjum en láta Eik Bank sigla sinn sjó í brunaútsölu eða gjaldþrot. Eik Bank er stærsti netbanki Danmerkur með um 100.000 viðskiptavini. Samkvæmt heimildum business.dk höfuðu dönsk stjórnvöld þessari hugmynd en þau funduðu um málið í gærkvöldi. Á sama tíma var haldinn neyðarfundur landsstjórnarinnar í Færeyjum með þáttöku fulltrúa frá stjórnarandstöðunni. Staðan er eins slæm og hún getur verið fyrir landstjórnina í Færeyjum. Í gær lagði hún fram fjárlög næsta árs með halla upp á um 500 milljónir danskra kr. Það að þurfa að borga milljarð danskra kr. til viðbótar til að bjarga Eik Banki yrði verulegt efnahagslegt áfall fyrir eyjarnar og raunar ekki hægt pólitíkst séð. Nú er beðið endanlegra svara frá dönskum stjórnvöldum í dag en Færeyingar vona helst að þeir fái lengri frest til þess að reyna að finna lausn á málinu.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira