Viðskipti innlent

Straumur sver af sér gjaldeyrisbraskarana

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Straumur Burðarás Fjárfestingabanki hf. hefur sent frá sér tilkynningu vegna frétta af meintum brotum fyrrverandi Straums á reglum um gjaldeyrismál.

Í tilkynningunni segir:





„Eins og komið hefur fram í fréttum liggja nokkrir fyrrverandi starfsmenn Straums undir grun um brot gegn reglum um gjaldeyrismál.

Í ljósi þess þykir ástæða til að árétta að ekkert bendir til að meint brot hafi átt sér stað á meðan hlutaðeigandi einstaklingar gegndu störfum hjá Straumi. Málið er því Straumi óviðkomandi.

Straumur Burðarás Fjárfestingabanki hf."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×