Engar athugasemdir við samruna Íslandsbanka og GGE 27. janúar 2010 13:55
Samkeppniseftirlitið gerir engar athugsemdir við samruna Íslandsbanka og Geysi Green Energy (GGE). Íslandsbanki hefur nú skipað alla stjórnarmenn GGE.Í ákvörðunarorðum Samkreppniseftirlitsins segir: „Með því að Íslandsbanki hf. skipar allar stjórnarmenn Geysis Green Energy ehf. hefur bankinn náð yfirráðum yfir félaginu. Telst vera um samruna að ræða í skilningi... samkeppnislaga. Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til þess að aðhafast frekar vegna samrunans"Umfjöllun Samkeppniseftirlitsins um málið er birt á vefsíðu þess. Þar segir að m.a. með bréfi, dags. 18 desember 2009, var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um breytt yfirráð yfir Geysi Green Energy ehfen þá lá fyrir að Íslandsbanki myndi hafa yfir öllum stjórnarmönnum GGE að ráða.Íslandsbanki er viðskiptabanki sem starfar eftir lögum um fjármálafyrirtæki. Íslandsbanki sinnir hefðbundinni viðskiptabankastarfsemi svo sem viðtöku innlána og útlánastarfsemi, miðlun verðbréfa og veitingu fjárfestingarráðgjafar. Helstu samkeppnisaðilar bankans eru önnur fjármálafyrirtæki með jafn víðtæk leyfi til fjármálastarfsemi og bankinn auk félaga með þrengri leyfi til fjármálastarfsemi. Á bankinn eignarhluti í nokkrum atvinnufyrirtækjum og fer með yfirráð yfir sumum þeirra.GGE á og fer með eignarhluti í ýmsum félögum sem beint eða óbeint starfa á sviði endurnýjanlegra orkugjafa og í skyldri starfsemi. Á meðal dótturfélaga GGE eru HS orka sem selur og framleiðir raforku og Jarðboranir sem hafa með höndum jarðhitaboranir og kjarnaboranir.Samkeppniseftirlitið hefur áður fjallað um samruna GGE við Jarðboranir annars vegar og HS orku hins vegar. Í ákvörðun nr. 29/2008, Kaup Geysis Green Energy á Jarðborunum, kemur fram að Jarðboranir séu í mjög sterkri stöðu á markaðnum fyrir jarðboranir á Íslandi en ekki kom til íhlutunar í málinu.Fjallað var um samruna GGE og HS orku í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 30/2009, Samruni Geysir Green Energy og HS orku. Lauk málinu með sátt þar sem GGE samþykkti að tryggja fullan rekstrar- og stjórnunarlegan aðskilnað á milli Jarðborana og HS orku. Var þessum skilyrðum ætlað að draga úr samkeppnislegum vandkvæðum tengdum samrunanum. Fólust þau í þeim lóðréttu tengslum sem mynduðust á milli HS orku og Jarðborana.HS orka sem orkuframleiðandi er einn af stærstu kaupendum borþjónustu Jarðborana á markaði þar sem afar fáir kaupendur starfa. Taldi Samkeppniseftirlitið að samruninn kynni án skilyrða að skapa hættu á því að Jarðboranir mismunuðu viðskiptavinum sínum á markaði fyrir jarðboranir.Með hliðsjón af öllu því sem að framan er rakið og atvikum öllum í máli þessu telur Samkeppniseftirlitið ekki sé ástæðu til að aðhafast frekar vegna samrunans.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira