Fiðrildi leikur á mandólín Friðrika Benónýsdóttir skrifar 16. nóvember 2010 08:00 Sýrópsmáninn eftir Eirík Guðmundsson.
Bækur / **** Sýrópsmáninn Eiríkur Guðmundsson Bjartur Það er ekki algengt að mann langi til að hrópa „loksins loksins“ við lestur nýrra íslenskra bóka en það gerðist þó við lestur fyrstu bókar Eiríks Guðmundssonar, 39 þrep á leið til glötunar, árið 2004. Þar kvað við svo ferskan tón að ekki varð um villst að nýr „alvöru“höfundur var kominn fram á sjónarsviðið. Skáldsagan Undir himninum árið 2006 náði ekki alveg að heilla mann upp úr skónum, þótt góð væri, en viðhélt þó fullvissunni um að hér væri á ferð einn ritfærasti höfundur síðustu ára. Sýrópsmáninn staðfestir það rækilega. Textinn er eins og hunang sem maður festist í og smjattar á og veit að maður á eftir að sækja í aftur og aftur. Fyrri hluti bókarinnar minnir á 39 þrepin, fullur af ógleymanlegum myndum, óvæntum vísunum og glænýrri sýn á raunveruleikann. Hver myndin annarri betri er dregin upp og lesandinn ýmist skellihlær eða kyngir kekkinum í hálsinum. Myndirnar af afanum með rússnesku loðhúfuna og skott Volgunnar stútfullt af ljóðum rússneskra skálda, verkstæði grímugerðarmannsins, rauðum skó í vegarkanti, heimsókn þeirra félaga sögumanns og vinarins Alfreðs í risaspiladósina við höfnina og þeirri súrrealísku hugmynd að ræna Kristjáni Karlssyni skáldi, loka hann inni og láta hann yrkja ljóð eða þýða Faulkner við undirleik ærandi rokktónlistar vefjast hver um aðra og sveifla lesandanum milli væmni og ofsakæti. En undir krauma stríðari öfl, ástin og dauðinn og vegalengdirnar milli manneskjanna í jarðlífsþokunni. Leiðarstef bókarinnar er setningin: Lífið kremur mann, sem gengur aftur, aftur og aftur í textanum og boðar það sem verða skal, jafnvel í gráglettnustu köflunum. Ísland er umlukið þoku, hlutir, fólk og mannvirki hverfa og Ítalía reynist litlu skárri með ógnandi skóginn, myrkur hans og leyndardóma sem skilja sögumanninn, konu hans og son frá umheiminum á sama hátt og þokan gerði heima. Hið eina sanna föðurland eru bókmenntirnar, eins og gjarnan áður hjá Eiríki. Mandelstam og Nabokov og Majakovskí og jafnvel Byron eru höfundar tilverunnar, haldreipi, leiðarstjörnur. Í tveimur síðustu hlutum bókarinnar fjarar eilítið undan sögunni, hún missir heljartökin sem hún hafði á lesandanum og endurtekningarnar, sem í upphafi voru eins og hjartsláttur í gegnum textann, fara að missa marks, verða höktandi og áhrifalausar. Textinn heldur þó áfram að vera listilega saman settur, enda aðalsmerki Eiríks þau ógnartök sem hann hefur á tungumálinu. Þetta er ekki bók sem nauðsynlegt er að lesa frá fyrstu til öftustu síðu í beit. Meira eins og ljóðabók sem liggur á stofuborðinu og maður grípur í aftur og aftur, les nokkrar línur hér og hvar og fagnar því að máttur orðanna skuli enn vera þess megnugur að lyfta manni yfir gráma hversdagsins. Niðurstaða: Listilega samansettur texti og myndir sem sveima lengi í huga lesandans. Bók sem gripið verður til aftur og aftur.
Mest lesið Fögnuðu sögulegum 850 þúsund króna hátalara Ella Egils Lífið Sonur Fóstbróður slær í gegn: „Ég er fastur þarna núna, orðinn háður“ Lífið „Kristrún Frostadóttir frá... Finnlandi?“ Lífið Lamaðist og missti sjón en fann styrk í sjálfri sér Lífið Björgvin Franz brotinn en slær í gegn í Ladda og ræktinni Lífið Þeir fátæku borga brúsann Gagnrýni Selja íbúð í Vesturbænum: „Við eigum of mörg börn til að búa í henni áfram“ Lífið Stjörnurnar flyktust á frumsýningu einnar mest spennandi bíómyndar ársins Lífið samstarf Fyrstur til að skíða niður Everest án súrefnis Lífið „Það sýður miklu frekar upp úr við uppvaskið“ Lífið Fleiri fréttir Þeir fátæku borga brúsann Auður í Bæjarbíói: Frá slaufun í standandi fagnaðarlæti Alvöru bíó en hægt brenna Eldarnir Er Lína Langsokkur woke? Kórtónleikar: Heilög naumhyggja eða heilalaust suð Barnaefni fyrir fullorðna Balta bregst bogalistin Þú heyrðir rétt: klassík getur verið skemmtileg Smashing Pumpkins pumpuðu upp stemningu – en listin varð undir hávaðanum Kynferðisleg gremja, sænskur senuþjófur og náttúruklám Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Sjá meira