Marel tapaði 11,8 milljónum evra - skuldir lækkuðu 4. febrúar 2010 23:21
Tekjur af kjarnastarfsemi Marels árið 2009 námu 434,8 milljónum evra og jukust jafnt og þétt á árinu. Rekstrarhagnaður (EBIT) af kjarnastarfsemi var 24,8 milljónir evra, sem er 5,7% af veltu. Heildartekjur ársins 2009 námu 531,7 milljónum evra, samanborið við 540,1 milljón evra árið 2008. Tap eftir skatta var 11,8 milljónir evra samanborið við 8,4 milljóna evra árið áður. Skuldir hafa hinsvegar lækkað á sama tíma. Í tilkynningu frá félaginu segir að Marel hafi haldið áfram að styrkja samkeppnisstöðu sína á árinu með því að einbeita sér að samþættingu samstæðunnar og verulegum niðurskurði í útgjöldum, sem lækkaði kostnaðargrunn rekstursins um 25 milljónir evra. „Nettó vaxtaberandi skuldir hafa lækkað í 295 milljónir evra (2008: 379 milljónir evra) vegna sterks sjóðstreymis, velheppnaðra hlutafjárútboða og sölu eininga utan kjarnastarfsemi." Að því er fram kemur í ársreikningi er efnahagsreikningur Marel í upphafi árs 2010 sterkur. „Nettó skuldir nema 295 milljónum evra samanborið við 379 milljónir evra í upphafi árs 2009. Sjóðstreymi frá rekstri fyrir vexti og skatta nam 75 milljónum evra fyrir árið 2009 og nýtt hlutafé nam 49 milljónum evra. Þar að auki hefur dregið úr vaxtakostnaði og gengisáhættu með lækkun skulda í íslenskri krónu, sem og myntbreytingu á láni úr íslenskri krónu yfir í evru (að upphæð 66 milljónum evra), sem er megintekjumynt félagsins. Pantanabók Marel er traust í upphafi árs 2010 og mun betri en í upphafi árs 2009. Það er aukin markaðsvirkni á öllum sviðum og fjöldi fyrirspurna eykst, einnig varðandi stærri verkefni." Ár umbreytinga að baki Theo Hoen, forstjóri segir að ár umbreytinga og niðurskurðar sé að baki. „Ég tel að fyrirtækið standa mun betur en það gerði fyrir ári. Við höfum náð góðum árangri í að skerpa á stefnu fyrirtækisins. Sameiningu Marel og Stork miðaði vel á seinni hluta árs. Jákvæðu áhrifin af sparnaði og kross-sölu verða veruleg og munu koma betur fram þegar líður á árið 2010. Arðsemi og sjóðstreymi hafa batnað. Við stöndum sterkari eftir að hafa lækkað kostnaðargrunn fyrirtækisins án þess að draga úr fjárfestingu í rannsóknar- og þróunarvinnu. Auk þess hefur skuldsetning minnkað," segir hann og bætir við að hann hafi mikla trú á framtíð fyrirtækisins og að Marel muni takast að ná langtímamarkmiðum sínum.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Valin vinsælust: „Lopapeysan og þetta reddast sjarminn einfaldlega selur“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Sjá meira