Verðbólguvæntingar fyrirtækja fara vaxandi 2. febrúar 2010 12:34
Verðbólguvæntingar fyrirtækja hafa hækkað undanfarið samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Seðlabankann í lok desember, en niðurstöður hennar birti bankinn nýverið í Hagvísum bankans fyrir janúarmánuð.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að samkvæmt könnuninni gera forsvarsmenn stærstu fyrirtækja landsins ráð fyrir að verðbólga verði 6% að tólf mánuðum liðnum. Þegar könnunin var gerð síðast september gerðu þeir ráð fyrir að árstaktur verðbólgu yrði 4% og er því ljóst að frá þeim tíma hafa verðbólguvæntingar þeirra aukist nokkuð.Ætla má að það sem spilar hér inn í væntingar stjórnenda séu áhrif óbeinna skatta á verðbólgu sem og væntingar þeirra um veikara gengi krónunnar, sem hvort tveggja myndar töluverðan verðbólguþrýsting. Þess má geta að í lok desember 2008 spáðu forsvarsmenn fyrirtækja að verðbólgan yrði 15% eftir tólf mánuði og ljóst er nú að þeir voru helst til of svarsýnir á þeim tíma þar sem verðbólgan reyndist vera 7,5% í desember síðastliðnum. Almenningur væntir þess að verðbólgan verði 10% eftir tólf mánuði samkvæmt sömu könnun sem framkvæmd var í nóvember síðastliðnum, og eru væntingarnar almennings óbreyttar frá því að könnun á þeim var gerð síðast í september. Ljóst er að almenningur væntir mun meiri verðbólgu eftir ár en forsvarsmenn fyrirtækja.Oft er talsverður munur á verðbólguvæntingum almennings annars vegar og stjórnenda fyrirtækja hins vegar. Virðist sem verðbólguvæntingar almennings mótist mest af þeirri verðbólgu sem er á þeim tíma sem könnunin er gerð en verðbólguvæntingar stjórnenda fyrirtækja mótast meira af verðbólguspám. Þegar könnunin var gerð var verðbólgan 8,6% en þess má geta að hún var framkvæmd um mánuði áður en könnun á væntingum fyrirtækjastjórnenda.Verðbólguálag á skuldabréfamarkaði hækkaði einnig á síðustu mánuðum nýliðins árs, en það hefur raunar snarlækkað undanfarnar viku og er nú á svipuðum slóðum og í septemberbyrjun. Álagið til 3ja ára er þannig 3,7% í dag, en það gefur vísbendingu um verðbólguvæntingar skuldabréfafjárfesta.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira