Fjárfestar telja töluverðar líkur á greiðslufalli innan árs 2. febrúar 2010 13:04
Skuldatryggingaálag ríkissjóðs til eins árs stendur nú í 910 punktum og telja fjárfestar því töluverðar líkur á að til greiðslufalls ríkissjóðs kunni að koma innan árs.Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um málið. Þar segir að skuldatryggingarálag ríkissjóðs til fimm ára hefur hækkað um 260 punkta það sem af er ári og er nú álíka hátt og um mitt síðasta ár (673 punktar). Hækkun álagsins endurspeglar væntanlega meðal annars vaxandi áhyggjur af því að ríkissjóður kunni að lenda í greiðslufalli á næstu árum."Í því sambandi er athyglisvert að þótt álagið til 5 ára, sem oftast er notað til samanburðar, sé þannig svipað og í júlí í fyrra er skuldatryggingarálag á ríkissjóð til eins árs 910 punktar eða mun hærra en þá var, og meira í líkingu við stöðuna fyrir ári síðan. Fjárfestar telja þannig töluverðar líkur á að til greiðslufalls kunni að koma innan árs," segir í Morgunkorninu.Ef litið er yfir erlendar skuldbindingar ríkissjóðs má þó segja að erfitt sé að rökstyðja slíka bölsýni hvað varðar næstu 12 mánuði. Samkvæmt Markaðsupplýsingum Lánamála ríkisins námu erlendar skuldir ríkissjóðs alls jafnvirði 357 milljörðum kr. um síðustu áramót. Af þeim skuldum er ekkert á lokagjalddaga á þessu ári og þarf ríkissjóður því aðeins að standa skil á vaxtagjöldum, sem gróflega má áætla að séu upp undir 20 milljarða kr.Árið 2011 eru lokagjalddagar á tveimur stórum erlendum skuldbindingum ríkissjóðs. Annars vegar er þar um að ræða sambankalán að fjárhæð 300 milljónir evra, sem greiða á í september og hins vegar skuldabréf að fjárhæð 1 milljarður evra sem fellur á gjalddaga í desember. Auk heldur þarf vitaskuld að greiða vexti af þessum og öðrum skuldbindingum.Ef ekki fæst frekara lánsfé inn í gjaldeyrisforða Seðlabankans gæti hann því verið orðinn nokkuð smár eftir þessar greiðslur. Það er hins vegar tæpast fyrr en í apríl 2012, þegar skuldabréf að fjárhæð 250 milljónir evra er á gjalddaga, sem gjaldeyrisforðinn kynni að verða þurrausinn, jafnvel þótt ekki takist að afla neins frekari gjaldeyris inn í hann.Auk ríkissjóðs sjálfs er Landsvirkjun eini lántakandinn með ríkisábyrgð sem ber umtalsverðar erlendar skuldir, eftir því sem næst verður komist. Fyrirtækið skuldaði tæplega 2,6 milljarða dollara eða 330 milljarða kr. í erlendum myntum um mitt síðasta ár, mest í evrum og dollurum.Afborganir þeirra skulda dreifast hins vegar nokkuð jafnt á næstu árin, ef marka má árshlutareikning fyrirtækisins. Þannig er jafnvirði 282 milljónir dollara á gjalddaga á næsta ári og 201 milljón dollara falla á gjalddaga árið 2012, auk vaxtagreiðslna.Landsvirkjun hefur aðgang að allt að 300 milljónum dollara úr gjaldeyrisforða Seðlabankans samkvæmt sérstökum viðbúnaðarsamningi sem gerður var í fyrrasumar. Sjóðstreymi fyrirtækisins hefur hins vegar að líkindum batnað töluvert frá fyrri hluta síðasta árs sakir þess hversu álverð hefur hækkað á erlendum mörkuðum, auk þess sem Landsvirkjunar kveðst vera vel í sveit sett hvað lausafé varðar miðað við nýlega frétt á vef fyrirtækisins, þar sem fram kemur að lausafé, veltilán og sjóðstreymi samanlagt eigi að duga fyrir öllum skuldbindingum fram til ársins 2012.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira