Einar Sigurðsson forstjóri Auðhumlu 2. febrúar 2010 13:49
Nú um mánaðamótin urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda, sem á stærstan hlut í Mjólkursamsölunni. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum eftir áratuga farsælan feril í íslenskum mjólkuriðnaði. Við starfinu tekur Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.Fjallað er um málið á vefsíðu Landssambands kúabænda. Þar segir að Magnús Ólafsson hóf störf hjá Mjólkurstöðinni í Reykjavík árið 1961 og hefur unnið nánast óslitið fyrir mjólkuriðnaðinn síðan. Hann er mjólkurfræðingur að mennt og hefur gengt ýmsum trúnaðarstörfum og tekið þátt í margvíslegum þróunarverkefnum sem tengjast uppbyggingu mjólkuriðnaðins hér á landi.Að loknu námi starfaði hann hjá Mjólkursamlagi KEA á Akureyri og síðan hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Þá lá leið hans til Mjólkurstöðvarinnar í Reykjavík þar sem hann var verkstjóri þar til hann varð framkvæmdastjóra Emmess ís árið 1980. Hann tók við starfi forstjóra Osta- og smjörsölunnar árið 2000 þar til starfsemin var sameinuð Mjólkursamsölunni í árslok 2006. Þá varð Magnús aðstoðarforstjóri og síðan forstjóri Mjólkursamsölunnar og forstjóri Auðhumlu.Einar Sigurðsson tók við starfi forstjóra Mjólkursamsölunnar 1. maí á síðasta ári. Hann hafði verið forstjóri Árvakurs í tvö og hálft ár og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Capacent þar á undan. Hann var um átta ára skeið framkvæmdastjóri stefnumótunar- og stjórnunarsviðs Flugleiða, en starfaði 17 ár hjá félaginu.Einar er með mastersgráðu í stjórnmálafélagsfræði frá London School of Economics og BA gráðu í fjölmiðlafræði. Hann starfaði að námi loknu sem fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu, hljóðvarpi og sjónvarpi, og var fyrsti útvarpsstjóri Íslenska útvarpsfélagsins og leiddi þar uppbyggingu útvarpsstöðvarinnar Bylgjunnar.Stjórn Auðhumlu þakkar Magnúsi óeigingjarnt og fórnfúst starf fyrir mjólkuriðnaðinn síðustu áratugina og bíður Einar velkominn til starfa.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira