Útlendingar sýna MP banka áhuga Þorbjörn Þórðarson. skrifar 29. desember 2010 12:26 Ragnar Þórir Guðgeirsson
MP banki þarf þrjá milljarða í formi nýs eigin fjár til að uppfylla kröfur FME um eigið fé. Bankinn á núna í viðræðum við þrjá aðskilda fjárfestahópa og eru útlendingar þar á meðal. „Ég get mjög lítið sagt á þessu stigi. Þetta mun skýrast á næstu vikum nánar og hvernig hinn endanlegi eigendahópur verður. Þetta eru þrír leiðandi aðilar sem taka hóp fjárfesta með sér. Þetta eru þrískiptar viðræður milli stjórnarinnar og þessara aðila," segir Ragnar Þórir Guðgeirsson, stjórnarformaður MP banka. „Frá upphafi höfum við lagt upp með það að þetta yrðu þrír milljarðar í auknu hlutafé, en þetta gæti orðið fjórir og hálfur. Þetta ræðst dálítið af útfærslu. Við gerðum ráð fyrir því að hlutafé sem kæmi inn yrði aldrei minna en þrír milljarðar króna. Þetta eru íslenskir og erlendir aðilar í þessum hópum," segir Ragnar. Hann er ekki tilbúinn að gefa upp hvers lenskir hinir erlendu fjárfestar eru. Vegna krafna Fjármálaeftirlitsins En hvers vegna eru þetta þrír milljarðar sem ykkur vantar? „Það eru settar ákveðnar kröfur hjá FME um styrkingu eiginfjárgrunns. Það er hægt að gera það með ýmsum hætti, það er hægt að breyta áhættuprófíl eða styrkja eigið fé. Við settum fram okkar áætlun um styrkingu eigin fjár og það var mat okkar að það væru þrír milljarðar króna sem þyrfti til að bankinn gæti haldið áfram að vaxa. Þetta er samspil af eignasamsetningu banka og eiginfjárgrunni sem þarf alltaf að huga að." FME gerði kröfu um að MP banki legði fram raunhæfa áætlun um styrkingu eigin fjár og gaf bankanum sex mánuðði til slíks, samkvæmt upplýsingum fréttastofu. „Það sem við erum að vinna eftir núna er okkar áætlun. Hún tók mið að því að við myndum vinna að þessu fram til áramóta. Við teljum að það sé góður gangur í þessu og munum gera FME grein fyrir þessu jafnóðum," segir Ragnar.
Tengdar fréttir Framtakssjóður er ekki að kaupa hlut í MP banka "Við eigum ekki í viðræðum um aðkomu að MP banka," segir Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands. 3. desember 2010 08:17 Tap MP banka 1,9 milljarðar á fyrri helming ársins MP banki skilaði 1,9 milljarða kr. tapi á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta kemur fram á vefsíðu bankans Þar sem greint er frá stöðu hans í ljósi fregna að undanförnu um að bankinn uppfylli ekki skilyrði Fjármálaeftirlitsins um eiginfjárhlutfall. 30. nóvember 2010 14:31 Eigið fé MP Banka er undir lágmarki FME MP banki hefur ekki birt uppgjör fyrir fyrri helming ársins. Eigið fé bankans er undir þeim mörkum sem Fjármálaeftirlitið (FME) hefur sett honum, en bankinn hefur sent uppgjör sitt þangað til yfirferðar. Þetta kom fram í fréttum RÚV í gærkvöldi. 29. nóvember 2010 07:35 MP þarf hugsanlega að selja eignir til að uppfylla skilyrði FME Forstjóri MP banka segir að eignasafn bankans verið yfirfarið og þá verði reynt að draga úr áhættu til að uppfylla kröfur Fjármálaeftirlitsins, en eigið fé bankans er undir þeim mörkum sem eftirlitið hefur sett honum. 29. nóvember 2010 12:11 Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Sjá meira
Framtakssjóður er ekki að kaupa hlut í MP banka "Við eigum ekki í viðræðum um aðkomu að MP banka," segir Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands. 3. desember 2010 08:17
Tap MP banka 1,9 milljarðar á fyrri helming ársins MP banki skilaði 1,9 milljarða kr. tapi á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta kemur fram á vefsíðu bankans Þar sem greint er frá stöðu hans í ljósi fregna að undanförnu um að bankinn uppfylli ekki skilyrði Fjármálaeftirlitsins um eiginfjárhlutfall. 30. nóvember 2010 14:31
Eigið fé MP Banka er undir lágmarki FME MP banki hefur ekki birt uppgjör fyrir fyrri helming ársins. Eigið fé bankans er undir þeim mörkum sem Fjármálaeftirlitið (FME) hefur sett honum, en bankinn hefur sent uppgjör sitt þangað til yfirferðar. Þetta kom fram í fréttum RÚV í gærkvöldi. 29. nóvember 2010 07:35
MP þarf hugsanlega að selja eignir til að uppfylla skilyrði FME Forstjóri MP banka segir að eignasafn bankans verið yfirfarið og þá verði reynt að draga úr áhættu til að uppfylla kröfur Fjármálaeftirlitsins, en eigið fé bankans er undir þeim mörkum sem eftirlitið hefur sett honum. 29. nóvember 2010 12:11