Kæra stjórnendur Giftar til ríkissaksóknara Þorbjörn Þórðarson skrifar 5. febrúar 2010 19:08
Sveitarfélögin Djúpivogur og Vopnafjörður ætla að kæra stjórnendur fjárfestingarfélagsins Giftar til ríkissaksóknara fyrir umboðssvik. Í nýlegri skýrslu Lagastofnunar Háskóla Íslands um starfsemi Samvinnutrygginga kemur fram að slíta hefði átt starfsemi Samvinnutrygginga árið 1994 og að stjórnarmönnum hafi borið skylda að sjá til þess að félaginu yrði slitið. Fjárfestingarfélagið Gift var stofnað utan um eignir Samvinnutrygginga árið 2007. Fimmtíu þúsund manns áttu eignarrétt í félaginu í ljósi þess að þeir greiddu tryggingar í áravís. Eignir félagsins brunnu inni í bankahruninu og tap félagsins fyrir árið 2008 var 58 milljarðar króna. Ljóst er að stjórnendur félagsins stýrðu því án umboðs því þeir sem áttu Samvinnutryggingar, þ.e fyrrum tryggingartakar eins og t.d sveitarfélög, veittu þeim ekki heimild til að stýra félaginu eins og raun varð á. Með öðrum orðum verið var að sýsla með annarra manna fé. Og í nýlegri skýrslu Lagastofnunar um Samvinnutryggingar segir að stjórnarmönnum í félaginu hafi borið skylda til að slíta félaginu strax árið 1994. Gift hafði alltaf rík tengsl við Framsóknarflokkinn, enda stofnað á grundvelli eigna gamla Sambandsins. Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga var stjórnarformaður Giftar. Aðrir í stjórn voru t.d Helgi S. Guðmundsson, fyrrverandi formaður bankaráðs Seðlabankans. Þá voru áhrif og ítök Finns Ingólfssonar innan Giftar alltaf mikil. Til að mynda keypti Finnur árið 2006 fjórðung hlutar Giftar í Icelandair árið 2006. Samkvæmt skýrslu Lagastofnunar er skaðabótaábyrgð stjórnarmanna Giftar líklega fyrnd. Nú hafa sveitarfélögin Vopnafjörður og Djúpivogur sem áttu bæði hlut í félaginu í gegnum Samvinnutryggingar tekið ákvörðun um að kæra stjórnendur og stjórnarmenn í Giftar til ríkissaksóknara fyrir umboðssvik. Hafa þau notið aðstoðar frá lögfræðisviði Sambands íslenskra sveitarfélaga til að hlutast til um kæruna. Umboðssvik geta varðað allt að sex ára fangelsi ef sakir eru miklar.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira