Bakkavör óskar eftir heimild til nauðasamings í dag 18. janúar 2010 08:46
Bakkavör Group hf. mun í dag óska eftir heimild til að leita nauðasamnings hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Kröfuhafar félagsins sem hafa yfir um 80% af skuldum félagsins að ráða hafa mælt með nauðasamningi. Nauðasamningsferlið mun engin áhrif hafa á starfsemi Bakkavarar, en á síðasta ári var gengið frá endurfjármögnun rekstrarfélaga fyrirtækisins fram til ársins 2012. Í tilkynningu segir að samkvæmt framlögðum samningi munu kröfuhafar í meginatriðum fresta öllum gjalddögum lána og skráðra skuldabréfaflokka félagsins til ársins 2014 en markmiðið er að kröfuhafar félagsins muni endurheimta fullt virði krafna sinna og ekki verði um afskriftir að ræða. Heildarfjárhæð skulda móðurfélags Bakkavarar nemur um 62,5 milljörðum króna. Liður í samningnum er að leggja til við hluthafafund að skipta hlutafé félagsins í þrjá flokka, A, B og C-flokk. Núverandi hlutafé verður í A-flokki. Með samþykki samningsins munu allir hagsmunaaðilar njóta ávinnings af þeim árangri sem náðst hefur í rekstri félagsins í kjölfar hagræðingaraðgerða sem félagið hefur unnið að undanfarin misseri. Áætlanir félagsins gera jafnframt ráð fyrir bættri afkomu og að hagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA) muni aukast um 14% á ári og sala um 4% á ári til ársins 2012. „Mikilvægum áfanga er nú náð í fjárhagslegri endurskipulagningu móðurfélags Bakkavarar. Markmiðið er að standa vörð um verðmæti fyrir kröfuhafa og hluthafa félagsins, en íslenskir lífeyrissjóðir eru þar á meðal," segir Ágúst Guðmundsson forstjóri Bakkavarar í tilkynningunni. „Þrátt fyrir krefjandi aðstæður á mörkuðum tel ég að þær aðgerðir sem félagið hefur ráðist í, ásamt þeim möguleikum sem reksturinn býr yfir, muni skila bættri afkomu á komandi árum. Ég er því vongóður um að okkur takist að greiða upp allar skuldir félagsins á Íslandi með vöxtum á næstu fjórum árum."
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Sjá meira