Íslandsbanki verður seldur hæstbjóðanda Þorbjörn Þórðarson skrifar 25. febrúar 2010 18:45
Enginn þeirra sem eiga stærstu kröfurnar á Glitni vill til frambúðar eiga 95 prósenta hlut í Íslandsbanka. Skilanefnd Glitnis hefur því sett bankann í söluferli og hefur falið svissneska bankanum UBS að vera ráðgefandi við söluna. Bankinn er talinn vera 100 milljarða króna virði. Framtíðarverkefni skilanefndar Glitnis munu felast í því að hámarka virði eigna Glitnis, innheimta og greiða aftur til lánardrottna. Mikill árangur hefur náðst en skilanefndin hefur þegar lokað útibúum og dótturfélögum eða selt þau í tíu löndum og í flestum þessara útibúa hafa allar skuldbindingar í viðkomandi löndum verið greiddar. Nú hefur verið tekin ákvörðun um sölu á 95 prósenta hlut skilanefndarinnar Glitnis í Íslandsbanka, en skilanefndin á hlutinn í gegnum sérstakt dótturfélag sitt ISB Holding. „Við höfum mikinn áhuga á því að hámarka verðmæti þessa eignarhluta eins og annarra. Og við erum búin að fá erlendan ráðgjafa til að horfa eftir framtíðareiganda að Íslandsbanka," segir Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis.s Árni er þarna vísa til svissneska bankans UBS sem verður ráðgefandi við söluna. Söluferlið verður í samráði við stjórnvöld og vonir standa til að því ljúki á næstu þremur til fimm árum. „Við mátum verðmæti Íslandsbanka í síðasta uppgjöri í kringum 100 milljarða króna fyrir þennan 95 prósenta eignarhluta," segir Árni. Kröfuhafar Glitnis hafa engin áhrif á daglegan rekstur eða framtíð Íslandsbanka. Og þeir vilja komast út. Er stemmningin í kröfuhafahópnum sú að að fæstir vilja vera langtímaeigendur að Íslandsbanka og vilja frekar selja hann og fá upp í kröfur sínar? „Já, það er þeirra meginmarkmið," segir Árni. Hann segir að kröfuhafarnir hafi mestan áhuga á því að verðmæti Íslandsbanka vaxi og þeir nái að selja hann aftur fyrir hærra verð innan „ekki mjög langs tíma."
Mest lesið Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira