Húsnæðisliður vísitölunnar veldur vandræðum við spár 25. febrúar 2010 11:51
Undanfarin misseri hefur spágeta vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sem Fasteignaskrá Íslands birtir dalað umtalsvert og hefur fylgnin frá mánuði til mánaðar verið afar lítil eða nánast engin undanfarið eitt og hálft ár.Ástæðan virðist aðallega felast í því að fjöldi makaskiptasamninga hefur aukist til muna en Fasteignaskrá Íslands sleppir slíkum samningum í útreikningum á sinni íbúðaverðsvísitölu á meðan Hagstofan tekur slíka samninga með og núvirðir þá til staðgreiðsluverðs.Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sem Fasteignaskrá Íslands birtir mánaðarlega hefur oft verið notuð sem vísbending um hvert húsnæðisliður vísitölu neysluverðs hefur stefnt í næstu mælingu. Vísitalan hefur verið birt nokkuð á undan vísitölu neysluverðs og því þótt hentug vísbending.Húsnæðisliður vísitölu neysluverðs er breyting í þriggja mánaða hreyfanlegum glugga í verði íbúðarhúsnæðis. Gildið sem Hagstofan birti í gær er þannig breytingin á milli meðalverðs húsnæðis annars vegar á tímabilinu október til desember í fyrra og hins vegar nóvember í fyrra og janúar í ár.Febrúarmælingin sýndi ríflega 0,03% hækkun íbúðaverðs á landinu öllu. Á sama tíma sýnir vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu reiknað sem þriggja mánaða hlaupandi meðaltal, álíka og Hagstofan reiknar sína vísitölu, 1.1% lækkun. Munurinn er sláandi mikill og ekkert einsdæmi þegar horft er til mælinga undanfarinna missera.Hlutfall makaskiptasamninga af heildarfjölda viðskipta á fasteignamarkaði jókst verulega um mitt ár 2008. Hefur hlutfall þessara samninga verið ríflega 30% af heildarfjölda kaupsamninga með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu á þessum tíma. Í ofangreindri vísitölu Fasteignaskrár Íslands er þessum samningum sleppt.Þegar það bætist síðan við að vísitala Hagstofunnar á við landið allt en vísitala Fasteignaskrárinnar einungis höfuðborgarsvæðið er niðurstaðan sú að sú síðari er nær ónothæf vísbending um með hvaða hætti húsnæðisliður vísitölunnar kemur til með að þróast í næstu mælingu vísitölu neysluverðs.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira