Nær fertug jómfrú færir sig um set 4. nóvember 2010 09:46
Ein ástsælasta smurbrauðsjómfrú landsins, Oddrún Sverrisdóttir, hefur gengið til liðs við veitingahúsið Nauthól í Nauthólsvík. Oddrún mun leiða smurbrauðsgerð Nauthóls, en hún hefur starfað í faginu í hartnær fjóra áratugi, þar af síðustu tvo áratugina hjá smurbrauðsgerðinni Brauðbæ. Í tilkynningu segir að hægt verður að panta smurbrauð fyrir veislur og fundi hjá Oddrúnu auk þess sem valdar smurbrauðsuppskriftir úr þykkri matreiðslubók Oddrúnar munu rata inn á matseðilinn hjá Nauthól. Smurbrauð hefur notið vaxandi vinsælda á Íslandi undanfarin ár. Þau njóta mikillar hylli sem hádegisverður og einnig er vinsælt að borða þau til hátíðarbrigða svo sem á aðventunni. Oddrún er kunnáttusöm í smurbrauðsgerð enda lærði hún til fagsins hjá erkijómfrúnni sjálfri Idu Davidsen í Kaupmannahöfn á árunum 1969 til 1972. Oddrún starfaði einnig sem yfirjómfrú hjá Idu í nokkur ár eftir námið en Ida er án vafa frægasta smurbrauðsdama heims. Saga smurbrauðsgerðar Davidsen fjölskyldunnar nær aftur til ársins 1888, þegar vínkaupmaðurinn Oskar Davidsen opnaði vínbar í Kaupmannahöfn. Kona hans byrjaði að smyrja brauð ofan í soltna gestina og orðrómurinn um gómsætar brauðsneiðarnar barst sem eldur í sinu um borgina og þar með var grunnurinn að smurbrauðshefðinni lagður.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira