Athugasemdir FME við viðskipti tveggja tryggingarfélaga 22. febrúar 2010 15:41
Fjármálaeftirlitið (FME) sá ástæðu til að gera athugasemdir við viðskipti tveggja tryggingarfélaga þegar eftirlitið athugaði iðgjöld og viðskiptahætti vátryggingafélaga á síðari hluta ársins 2009. Fjallað er um málið á vefsíðu FME. Þar segir að við athugunina var lögð megináhersla á starfsemi félaganna í ökutækjatryggingum en einnig var horft til annarra vátryggingagreina. Athugunin fór fram á vettvangi hjá vátryggingafélögunum þar sem fundað var með forsvarsmönnum þeirra, auk þess sem fulltrúar FME fengu aðgang að upplýsingakerfum félaganna til að skoða og meta þróun í iðgjöldum.Athugunin var gerð í ljósi mikils umróts á vátryggingamarkaði þar sem samkeppnisaðilar sökuðu hver annan um undirboð. Helstu niðurstöður Fjármálaeftirlitsins varðandi iðgjöld voru að í umhverfi harðnandi samkeppni og versnandi fjárhagsstöðu hafi vátryggingafélögin með auknum hætti leitað leiða til að tengja iðgjöld mati á áhættu hvers viðskiptavinar. Þetta þýðir að skilvísir, varkárir og tjónlausir viðskiptavinir geta notið betri kjara en aðrir. Fjármálaeftirlitið fagnar þessari þróun.Tilefni þótti til til að skoða viðskiptahætti félaganna í umhverfi harðnandi samkeppni. FME sá ástæðu til að gera sérstakar athugasemdir við viðskiptahætti tveggja vátryggingafélaga. Einnig leggur FME áherslu á að félögin gæti að afkomunni í markaðssókn sinni.Í niðurstöðu athugana FME koma fram helstu áhersluatriði eftirlitsins varðandi ákvörðun iðgjalda. Áhersluatriðin fela í sér verklag sem FME leggur áherslu á að vátryggingafélögin fylgi. Í mörgum tilvikum eru áhersluþættirnir sameiginlegir eða sambærilegir hjá öllum félögum. Sameiginlegir áhersluþættir eru:Félögin gæti staðfestu í að verðleggja vátryggingar eftir raunverulegri áhættu. Dæmi um slíkt er þegar iðgjald kaskótrygginga er í samræmi við verðmæti ökutækis.Í stað flatra hækkana á iðgjaldaskrám verði leitað leiða til að verðlagning á vátryggingum einstakra viðskiptavina sé sem réttust, þ.e. í samræmi við raunverulegt mat á áhættu.Afslættir verði veittir í samræmi við tjónareynslu og mat félagsins á áhættu viðskiptavina.Mikilvægt er að iðgjöld og eigin áhættur fylgi breytingum á verðlagi þeirra þátta sem hafa áhrif á bótafjárhæðir. Slíkt takmarkar hættu á því að vátryggingafélögin verði fyrir verulegu tapi vegna verðlagshækkana. Sé slíkt ekki gert skapast einnig hætta á að vátryggingartakar þurfi síðar að taka á sig verulega hækkun iðgjalda í einu lagi.Verk utanaðkomandi aðila verði unnin á sem hagkvæmastan hátt án þess að það komi niður á tjónabótum til tjónþola. T.d. leggst FME ekki gegn því að settir séu notaðir varahlutir í bíla, svo fremi sem ekki er um eldri varahlut að ræða en árgerð bílsins segir til um og að fyrir liggi mat þjónustuaðila á gæðum varahlutarins.Áhersla verði lögð á að vátryggingareksturinn standi undir sér.
Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira