Kaupmáttur launa svipaður og í árslok 2002 22. febrúar 2010 11:48
Frá því að kaupmáttur launa var hér mestur í janúar 2008 hefur hann rýrnað um 12,2% og er svipaður og í árslok 2002. Gera má ráð fyrir að kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilanna hafi rýrnað enn frekar, þá m.a. sökum þess að atvinnuleysi hefur aukist mikið undanfarið og skattar hafa hækkað.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að sú kaupmáttarskerðing sem íslenskir launþegar hafa orðið fyrir undanfarin misseri á sér fá fordæmi hér á landi og þarf að fara aftur til byrjun tíunda áratugar síðustu aldar til þess að finna álíka þróun. Jafnframt hefur þessi mikla kaupmáttarrýrnun leitt til þess að kaupmáttur launa er nú kominn aftur til ársins 2002.Í janúar jókst kaupmáttur launa um 0,4% frá fyrri mánuði sem má einna helst skýra með óvæntri verðhjöðnun á sama tíma og laun hækkuðu aðeins. Þannig hækkuðu laun um 0,1% frá fyrri mánuði á sama tíma og vísitala neysluverð lækkaði um 0,3%.Á síðustu tólf mánuðum hafa laun hækkað um 3,1% en kaupmáttur minnkað um 3,2% enda hafa launahækkanir verið afar litlar síðustu misseri á sama tíma og verðbólga hefur verið mikil. Það var Hagstofa Íslands sem birti launavísitöluna fyrir janúar 2010 nú í morgun.Greiningin segir að telja megi líklegt að kaupmáttur mælt yfir tólf mánaða tímabil komi til með að skerðast enn frekar á næstunni. Framundan eru litlar launahækkanir enda mikill og vaxandi slaki á vinnumarkaði. Á sama tíma mun verðbólgan verða nokkur á næstu mánuðum.„Samkvæmt nýlegri spá okkar mun mæld verðbólga aukast nú í febrúar um 0,8% þannig að verðbólga fari úr 6,6% í 6,9% og ná svo hámarki í 8,2% í mars. Í kjölfarið teljum við að draga muni mjög úr verðbólgunni og að hún verði 3,0% yfir árið. Reiknum við með að kaupmáttur svona mældur taki ekki að aukast á ný fyrr en í fyrsta lagi undir lok ársins," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Hækka stýrivexti aftur Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Viðskipti innlent Málmhlutur í maís Viðskipti innlent „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Viðskipti innlent Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Atvinnulíf Fleiri fréttir Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Sjá meira