Skuldabréfamarkaður bíður tíðinda af Icesavemálinu 22. febrúar 2010 12:08
Þróun á skuldabréfamarkaði í aðdraganda útboðs á ríkisbréfum s.l. föstudag var ríkissjóði býsna hagfelld. Ávöxtunarkrafa beggja ríkisbréfaflokkanna sem í boði voru á föstudag lækkaði verulega í síðustu viku, ekki síst vegna betri horfa á farsælli lausn Icesave-deilunnar. Leysist deilan fljótlega eykur það líkur á áframhaldandi lækkun stýrivaxta næsta kastið.Greining Íslandsbanka segir þetta í Morgunkorni sínu og bætir við að hinsvegar hafi slegið nokkuð í bakseglin eftir tíðindi af dræmum undirtektum stjórnarandstöðu við gagntilboði Breta og Hollendinga. Krafa ríkisbréfa hefur þó lítið breyst það sem af er degi og kann að vera að fjárfestar bíði í senn frekari frétta af Icesave-málum sem og nýrra verðbólgutalna sem birtast munu á miðvikudagsmorgun.Ávöxtunarkrafan á seldum RIKB25-bréfum í útboði Lánamála ríkisins síðastliðinn föstudag var sú lægsta frá því flokknum var hleypt af stokkunum í fyrrasumar, og ávöxtunarkrafan á seldum RIKB11-bréfum var sú lægsta síðan í september á síðasta ári.Allgóð þátttaka var í útboðinu, og bárust alls tilboð að fjárhæð 17,6 milljarðar kr. í fyrrnefnda flokkinn en að fjárhæð 11,8 milljarðar kr. í þann síðarnefnda. Var tilboðum tekið í RIKB25 fyrir 1,5 milljarð kr. á 7,62% ávöxtunarkröfu en í RIKB11 var tilboðum fyrir 8,8 milljarða kr. tekið á 7,13% ávöxtunarkröfu.Áhersla Lánamála virðist því hafa verið á stækkun RIKB11-flokksins að þessu sinni, en hann er nú orðinn u.þ.b. 21,4 milljarðar kr. að stærð, miðað við nafnverð og að frátöldum lánsbréfum. Hefur flokkurinn því ríflega tvöfaldast að stærð í útboðum febrúarmánaðar.
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira