Samkeppniseftirlitið segir Símann á villigötum 27. apríl 2010 17:23
Samkeppniseftirlitið segir málatilbúnað Símans ekki eiga við rök að styðjast en Síminn hefur stefnt Samkeppniseftirlitinu vegna húsleitar sem framkvæmd var á dögunum. Síminn krefst þess að öllum gögnum sem aflað var verði eytt í ljósi þess að starfsmenn samkeppnisaðila hafi annast afritatökuna. „Eins og fram er komið opinberlega framkvæmdi Samkeppniseftirlitið húsleit hjá Símanum og öðrum fyrirtækjum í sömu samstæðu, þann 21. apríl síðastliðinn," segir í yfirlýsingu frá Samkeppniseftirlitinu. „Húsleitin var viðamikil enda þurfti eftirlitið að afrita og leita gagna á nokkrum stöðum í húsnæði fyrirtækjanna." Því þurfti Samkeppniseftirlitið þurfti því að fá til liðs við sig nokkra einstaklinga með upplýsingatækniþekkingu til að aðstoða við aðgerðina og leitaði til Þekkingar í því skyni. „Umræddir einstaklingar voru starfsmenn Samkeppnis-eftirlitsins á vettvangi og störfuðu samkvæmt fyrirmælum og á ábyrgð þess," segir ennfremur. Þá segir að öll aðgerðin hafi farið fram undir stjórn Samkeppniseftirlitsins og þau gögn sem haldlögð voru og afrituð eru vistuð með öruggum hætti hjá Samkeppniseftirlitinu. „Umræddir einstaklingar komu hvergi nærri haldlagningu gagna eða efnislegri skoðun tölvugagna heldur fólst hlutverk þeirra einvörðungu í tæknilegri aðstoð við afritun gagna. Málatilbúnaður Símans á því ekki við rök að styðjast." Þá segir að lokum að með hliðsjón af framangreindu komi kæra Símans og krafa um eyðingu húsleitargagna á óvart, „ekki síst í ljósi þess að Síminn lýsti því opinberlega yfir að fyrirtækið myndi vinna með Samkeppniseftirlitinu við öflun gagna og rannsókn á þeim."
Tengdar fréttir Síminn stefnir Samkeppniseftirlitinu vegna húsleitar Síminn hf. sakar símafyrirtækið Þekkingu, sem á í samkeppni við Símann á upplýsingatæknimarkaði, um að hafa afritað tölvugögn Símans og Skipta við húsleit sem Samkeppniseftirlitið framkvæmdi í síðustu viku. Þar á Þekking að hafa starfað sem undirverktaki. 27. apríl 2010 15:40 Mest lesið Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Sjá meira
Síminn stefnir Samkeppniseftirlitinu vegna húsleitar Síminn hf. sakar símafyrirtækið Þekkingu, sem á í samkeppni við Símann á upplýsingatæknimarkaði, um að hafa afritað tölvugögn Símans og Skipta við húsleit sem Samkeppniseftirlitið framkvæmdi í síðustu viku. Þar á Þekking að hafa starfað sem undirverktaki. 27. apríl 2010 15:40