Viðskipti innlent

Sjóvá í söluferli

Sjóvá.
Sjóvá.

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur verið falið að annast formlegt söluferli á Sjóvá-Almennum tryggingum en söluferlið verður opið öllum fjárfestum er uppfylla tilgreind skilyrði samkvæmt tilkynningu frá Sjóvá. Þar segir einnig að tilboðin verða opnuð í viðurvist óháðs aðila.

Sjóvá er í dag 90,7 prósent eigu SAT Eignarhaldsfélags og 9,3 prósent í eigu Íslandsbanka.

Fjárfestum gefst kostur á því að bjóða í allt að 100 prósent hlutafjár Sjóvár. Söluferlið hefst formlega mánudaginn 18. janúar klukkan tíu um morguninn með birtingu upplýsinga á vef Íslandsbanka á slóðinni www.islandsbanki.is/sjova2010.

Söluferlið verður opið öllum áhugasömum fjárfestum sem teljast fagfjárfestar samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti og geta sýnt fram á eiginfjárstöðu umfram 500 milljónir króna.

Áhugasamir fjárfestar þurfa að fylla út trúnaðaryfirlýsingu sem hægt er að nálgast á heimasíðu Íslandsbanka (www.islandsbanki.is/sjova2010) ásamt því að leggja fram nauðsynlegar upplýsingar og gögn sem staðfesta að ofangreind skilyrði séu uppfyllt.

Í kjölfarið fá fjárfestar afhent frekari gögn um félagið. Seljandi áskilur sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu þegar fyrir hendi eru lagalegar takmarkanir á því að fjárfestir eignist ráðandi hlut í félaginu, svo sem vegna samkeppnisreglna.

Jafnframt er vakin athygli á því að samþykki Fjármálaeftirlitsins er skilyrði fyrir því að fjárfestir geti farið með virkan eignarhlut í tryggingafélagi.

Þeim fjárfestum sem leggja fram hæstu tilboðin og sýna fram á fjárhagslega burði til að standa við þau, verður boðið til áframhaldandi þátttöku í söluferlinu. Fá þeir þá aðgang að nánari upplýsingum um starfsemi og fjárhag fyrirtækisins.

Tilboð verða opnuð í viðurvist óháðs aðila.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×