FME hefur lokið rannsókn í 50 málum Þorbjörn Þórðarson skrifar 15. janúar 2010 12:05
Fjármálaeftirlitið hefur (FME) hefur haft sjötíu og sjö mál til rannsóknar til þessa dags sem tengjast falli bankanna. Eftirlitið hefur lokið rannsókn í fimmtíu málum og tuttugu og sjö eru enn í rannsókn. Alls hefur FME vísað þrjátíu og einu máli, þar sem grunur er um refsiverða háttsemi, til embættis sérstaks saksóknara.Þetta kemur fram í fyrstu grein af fjórum í greinaflokki Guðrúnar Jónsdóttur, sviðsstjóra hjá Fjármálaeftirlitinu, í Fréttablaðinu í dag. Guðrún segir að af þeim 27 málum sem tengjast falli bankanna sem enn séu í rannsókn séu rannsóknir á frumstigi í nokkrum tilvikum.Flest mál sem snerta einstaklinga snúist um innherjaviðskipti. Þá hafi FME rannsakað brot á gjaldeyrisreglum Seðlabankans og skoðað hvort menn eða fyrirtæki hafi farið á svig við höftin, en markmið þeirra er að renna stoðum undir styrkingu krónunnar.Mörg þeirra mála sem FME rannsakar eru afar flókin og teygja sig yfir landamæri, en FME hefur aflað gagna hjá erlendum eftirlitum og segir Guðrún Jónsdóttir að þeir tölvupóstar sem eftirlitið hafi skoðað skipti núna milljónum.Í greininni segir að það eigi eftir að taka Íslendinga langan tíma að vinna sig í gegnum þau mál sem hafi komið upp í kjölfar falls bankanna. Regluverkið hafi verið til staðar en því hafi ekki verið framfylgt sem skyldi. Finnski bankasérfræðingurinn Kaarlo Jannari hafi bent á það í skýrslu sinni um regluverkið á íslenskum fjármálamarkaði að aðsópsmiklir aðilar á markaðnum hafi getað fari í kringum lagabókstafinn og eftirlitsaðilar hafi verið of veikburða og skort lagastoð til að bregðast við.Þá muni þeim málum sem fari til sérstaks saksóknara fjölga á næstunni, en FME hefur sent alls 31 mál þangað vegna gruns um refsiverða háttsemi. Allir hafi nú lært mjög dýra lexíu og ljóst sé að eftirlit verði nákvæmara í framtíðinni auk þess sem eftirlitið muni ganga fram af meiri festu en áður hafi þekkst.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Sjá meira