Hluthafar gætu brunnið inni við afskráningu Bakkavarar 18. mars 2010 00:01 Þórður friðjónsson Fyrirhuguð afskráning Bakkavarar af markaði er í skoðun í Kauphöllinni.
Afskráning með þeim hætti sem Bakkavör áformar er ekki hafin yfir vafa, að mati Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Kauphallarinnar. „Við erum að fara gaumgæfilega yfir málið," segir hann. Meirihluti kröfuhafa Bakkavarar samþykkti nauðasamninga félagsins fyrir tæpum hálfum mánuði. Í kjölfarið var boðað til hluthafafundar Bakkavarar 26. mars næstkomandi. Þar eignast kröfuhafar félagsins 27 prósenta hlut í Bakkavör en eign Bakkavararbræðra þurrkuð út. Að fundi loknum verður stefnt að því að taka hlutabréf Bakkavarar úr viðskiptum í Kauphöllinni. Bakkavör er eitt þeirra sex hlutafélaga sem mynda Úrvalsvísitöluna. Þórður segir meirihlutaeigendur skráðra félaga verða að huga betur að markmiðum Kauphallarreglnanna. Gæta verði að hag minni hluthafa, sem kunni að bera skarðan hlut frá borði bjóðist þeim engar leiðir til að losa sig við eign sína í Bakkavör. „Þetta finnst okkur ekki hafa á sér góðan blæ né til þess fallið að efla trúverðugleika á markaði," segir Þórður og bendir á að nokkrir möguleikar gætu verið í stöðunni. Bjóða megi hluthöfum að selja bréf sín á tilteknu verði eða þeim boðin önnur hlutabréf í skiptum fyrir bréfin í Bakkavör fyrir afskráningu. - jab
Mest lesið „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Sjá meira