Keypti Lýsi af vinum sínum á 235 milljónir í miðju hruni Þorbjörn Þórðarson skrifar 19. janúar 2010 18:45
Guðbjörg Matthíasdóttir í Vestmannaeyjum keypti Lýsi hf. af vinum sínum þeim Gunnlaugi Sævari Gunnlaugssyni og Katrínu Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Lýsis, á 235 milljónir króna í miðju bankahruninu. Guðbjörg fékk lán fyrir öllu kaupverðinu.Lýsi hf. var að stærstum hluta í eigu Katrínar Pétursdóttir, framkvæmdastjóra Lýsis og Gunnlaugs Sævars Gunnlaugssonar, lögfræðings og fyrrverandi formanns Útvarpsráðs, en saman fóru þau með 83 prósenta hlut.Hnotskurn ehf. eignarhaldsfélag þeirra Gunnlaugs Sævars og Katrínar tapaði miklu á hlutabréfum í FL Group, en langtímaskuldir þess félags samkvæmt ársreikningi voru 2,7 milljarðar króna í lok árs 2008. Einu eignir félagsins voru hlutabréf í FL Group sem eru verðlaus í dag.Hinn 7. október 2008, í miðju bankahruninu og daginn eftir setningu neyðarlaganna, stofnaði Guðbjörg Matthíasdóttir eignarhaldsfélagið Ívar ehf. og keypti það félag síðan 83 prósenta hlut Gunnlaugs Sævar og Katrínar í Lýsi á tæplega 235 milljónir króna. Allt kaupverðið var fengið að láni, samkvæmt ársreikningi Ívars fyrir árið 2008.Samkvæmt þessu var Lýsi hf. metið á 283 milljónir króna þegar kaupin áttu sér stað, en hagnaður félagsins fyrir skatt og vaxtagjöld var rúmlega hálfur milljarður króna á árinu 2008.Gunnlaugur Sævar er náinn viðskiptafélagi og fjölskylduvinur Guðbjargar og hefur gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir félög í hennar eigu. Hann er stjórnarformaður Lýsis hf. Lýsi hefur nokkuð stöðuga og örugga tekjustofna og flytur út mikið af lýsi og tengdum afurðum. Eigið fé félagsins var hins vegar neikvætt um rúmlega milljarð króna í árslok 2008. Félagið er mjög skuldsett og voru vaxtaberandi skuldir rúmlega 5,5 milljarðar króna í lok sama árs.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira